Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1967, Síða 54

Eimreiðin - 01.09.1967, Síða 54
Risu hallir úr roðasteinum, runnu skip á silfurteinum. My?idadjásn ur marmara einum. máttu prýða torgin. En alltaf býr hún einhvers staðar, sorgin. Gœfan mina greip um mund, gekk ég oft á hennar fund. Ég blundaði i birkilund, blá voru rekkutjöldin. Stjörnuaugun störðu á mig á kvöldin. Ég dansaði við dróttir lands, dáðrík sveit og meyjafans bryntu mér og brugðu krans, buðu mér tign og völdin. Stjörnuaugun störðu á mig á kvöldin. Ég sveif i gegnum brim og boða, blitt mig vafði i morgunroða. Nóg var alltaf nýtt að skoða um náttúruna alla. En alltaf heyrðist mér einhver vera að kalla. Margar lœrði ég listir braga, lék ég pcer um nótt og daga, en pað er aftur önnur saga, unga, litla táta. Alltaf heyrðist mér einhver vera að gráta. Lék ég mér um loft og sjá, unz lagði gœfan burt mér frá. Brotnuðu mínar borgir þá, brann minn skipafjöldinn. Furðuleg mér fundust syndagjöldin.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.