Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1967, Side 57

Eimreiðin - 01.09.1967, Side 57
Smásaga eftir Kedar Nath. \ %■ 98 \ \ ty>•o2£2f,2f.o^o^o^o^cl^o^o^0^0^0^0^0^0^0^0^0^0^o^0^0^0^0^c^0^o^0^o^*, »u»o*o*0*0*0*0*0*0»0*0«0*0*0«0*0«0*0«0«0*0*0«0«0«0*0«0«0*0«0«0«( í þessari órofaþögn dundi hans eiginn hjartsláttur í eyrum hans. En hann hafði lært það í styrj- öldinni að taka hættunum með ró. Hann lagði höndina mjúk- lega á öxl konu sinni. Þessar þrjár vikur síðan Ind- land og Pakistan urðu til sem ríki, höfðu þrjár flóttamanna- lestir orðið fyrir árás, karlmenn- irnir verið drepnir, konurnar teknar, og það var sagt, að þær hefðu verið seldar. Sýnin ásótti hann enn. Spennan jókst. Hraður andar- dráttur, barnsgrátur, hastað á börnin hvísslágt og gremjulega, tuldur sem reis og hneig eins og þung undiralda. Þjáður ofsjónum ímyndaði hann sér æstan múg vopnaðan hnífum, bareflum, byssum og sverðum; tryllingsleg öskur og skelfingarstunur ómuðu í eyrum hans. Smám saman fann hann þó draga úr spennunni. Gegnum rifu á lokuðum gluggahleranum sá hann braut- arpallinn og í fölri birtu frá Ijóskeri á staur vopnaðan mann með vélbyssu, og hann vissi, hve mjóu munaði að hann og sam- ferðafólk hans yrði brytjað nið- ur, þurfti ekki annað en þeir úti fyrir fengju grun um að þetta væri ekki vöruflutninga- lest. Hann minntist árásarinnar, sem gerð hafði verið fyrir mán- uði á þorpið, þar sem foreldrar hans bjuggu, íbúar þess reknir inn í hlöðu, sem síðan var kveikt í, brunnin líkin og pollar af bráðinni feiti hið eina, sem eftir var af þeim daginn eftir. Flóttafólkið lá svo þröngt hvað að öðru og farangri sínum, að ólíklegt var að nokkur pink- ill hefði færzt úr skorðum, þótt vagninn hefði oltið á hliðina. Það hafði verið slökkt á ljóskúl- unni, svo mennirnir á brautar- pallinum gerðust ekki forvitnir, og loftið inni var heitt og þungt. Loks komst lestin af stað. — Raddirnar féllu saman eins og hlekkir í festi. „Brezkt samsæri.“ „Þegiðu!“ „Hver vildi þetta fyrirkomu- lag, Indland og Pakistan?“ „Ágústmánaðar 1947 verður minnst sem . .

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.