Eimreiðin - 01.09.1967, Page 60
HULDUSJÓÐIR HJARTANS
eftir
Grétar Fells.
Flestir íslendingar munu nú
kannast við Poul Brunton. Margir
hafa lesið bækur lians á ensku, og
á síðustu árum hafa nokkrar þeirra
verið þýddar á íslenzku. Frú Guð-
rún Indriðadóttir og Þorlákur
Ófeigsson þýddu litla bók eftir
hann, er liann nefndi „Tlie Secret
Path“. Kom þýðing þeirra seinna
út í tímariti Guðspekifélagsins,
„Ganglera“, undir nafninu „Innri
leiðin“. Og síðar var hún gefin út
í lítilli bók, sem hlaut nafnið
„Leiðin dulda“. Það er um þessa
litlu bók að segja, að sumir telja
hana beztu bók Bruntons. Ég get
ekki verið því sammála, en samt
sem áður er hér um að ræða mjög
merkilega bók, eins konar hand-
bók í sálrækt, enda er vitað, að
hún hefur valdið straumhvörfum
í lífi margra manna, þeim, er til-
einkuðu sér leiðbeiningar hennar
og lífsreglur. Frú Guðrún Indriða-
dóttir hefur og þýtt tvær aðrar
bækur Bruntons: „Dulheima Ind-
lands“ og „Dularmögn Egypta-
lands“. Báðar þessar bækur hafa
verið ntikið keyptar og lesnar hér
á landi.
Árið 1960 kom út bók Bruntons.
er hann nefndi „The Quest of the
overself', í íslenzkri þýðingu Þor-
steins Halldórssonar. Hlaut hún
nafnið „Hver ert þú sjálfur?" Segja
má, að þessi bók sé framhald bók-
arinnar „Leiðin dulda“, sé nánari
greinargerð og útlistun þeirra
kenninga, er fram koma í hinni
fyrrnefndu bók, og sé því í raun
og veru nauðsynlegur lestur öllum
þeirn, sem kynnast vilja til hlítar
lífsleið þeirri, sem Brunton boðar.
Erlendur ritdómari einn segir um
þessa bók: „Ég mæli með þessari
bók sem langsamlega öruggustu og
skynsamlegustu skýringu á aust-
rænni háspeki og aðferð til hug-
stjórnar, sem ég hef kynnzt.“ Sam-
tals mun Brunton hafa ritað 11
bækur, og eru þær þessar, auk
þeirra, senr nefndar hafa verið: „A
Hermit in the Himalaya“. Sú bók
hefur nú verið Jrýdd á íslenzku af
Þorsteini Halldórssyni og nefnist
„Einbúinn í Himalaya“. Kom hún
út um síðustu jól. — Hinar bæk-
urnar eru: „The Message frorn
Arunachala" (Boðskapur frá Arun-
achala), „The Inner Reality"
(Andlegi veruleikinn), „Hidden
Teachings beyond Yoga“ (Hulin
fræði handan yoga), „Indian Philo-
sophy and modern Thought“ (Ind-
versk heimspeki og nútíma hugs-
un), „Wisdom of the overself“
(Vizka yfirvitundarinnar), og loks
„The Spiritual Cricis of Man“