Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1967, Side 62

Eimreiðin - 01.09.1967, Side 62
242 EIMREIÐIN um hina leyndu hlið indverskrar heimspeki undir liandleiðslu hins persónulega fræðara konungsins. Sá, sem þessar línur ritar, hafði lengi haft hug á því að sjá Brun- ton og kynnast honum persónu- lega. Hafði ég lesið flestar bækur hans mér til sálubóta, og skal því ekki leynt, að mér virtist liann vera einn af allra athyglisverðustu andlegum fræðurum Vesturlanda, þeirra, er ég hef átt kost á að kynnast af lestri bóka. Fannst mér fara saman hjá honum mikill and- legleiki (,,spirituality“), skörp hugs- un og greinargóð og mikil þekk- ing á þroskalögmálum sálarinnar og úrkostum mannsandans yfirleitt. Og að svo miklu leyti sem ég hafði prófað kenningar hans og farið eftir þeim í lífi mínu og starfi, reyndust þær réttar og mjög hag- kvæmar (,,praktiskar“). Þetta voru ekki svo lítil meðmæli með mann- inum og fræðum hans. Sumarið 1952 dvaldist ég um tíma í Danmörku ásamt konu minni, meðal annars til þess að kynnast danska dulspekingnum Martinusi Thomsen. Hittist þá svo á, að Brunton var í Kaup- mannahöfn, að nokkru leyti í sömu erindum og ég, þ. e. að kynna sér kenningar Martinusar. — Áttum við þess kost að hitta Brunton fjórum sinnum, þrisvar í Kaupmannahöfn og einu sinni í Kosmos Ferkby á Norður-Sjá- landi, en þar hefur Martinus eins konar sumarbúðir fyrir starfsemi sína. Meðan Brunton dvaldist í Kaup- mannahöfn, hélt hann til í heim- kynnum Martinusar (Mariendals- vej 94—96). Óskaði hann þess að fá að vera þarna í friði, til þess að geta sinnt aðalerindi sínu, en það var, eins og áður er sagt, að kynna sér kenningar Martinusar. En einhvern veginn barst það fljótt út, að Brunton væri staddur þarna, og þá var ekki að sökum að spyrja. Fékk hann heimsóknir margra manna, sem sumir komu fyrst og fremst fyrir forvitni sakir, og mjög var hann einnig ónáðað- ur í síma. Brunton varð að gefast upp við einangrunaráform sitt, og síðasta daginn, er hann dvaldist í Kaupmannahöfn, tók hann á móti blaðamönnum, og birtust viðtöl við hann í helztu blöðum borgar- innar daginn eftir. Hér skal birtur útdráttur úr viðtali, er birtist í „Berlingske Tidende“, því að svo lángt sem það nær, er skoðunum Bruntons þar rétt lýst. Blaðamað- urinn spyr og Brunton svarar: Getum vér komizt í snertingu við eða náð tökum á vorri eigin sál? Vér getum að minnsta kosti séð henni bregða fyrir. Miklir lista- menn þekkja þetta, t. d. tónskáld, þegar þau skapa verk sín. Þetta er uppgötvun skyldleikatengsla milli þín og guðs, liins stjórnandi kraft- ar á bak við hinn ytri heim, inn- sæis þekking, sem einkum verð- ur vart hjá kaþólskum dulspeking- um. Og hvað er svo ávinningurinn við þessa útþenslu vitundarinnar? Meiri hamingja?

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.