Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1967, Síða 65

Eimreiðin - 01.09.1967, Síða 65
HULDUSJÓÐIR HJARTANS 245 Um útlit Bruntons er þetta að segja: Hann er maður mjög lág- vaxinn og grannur, en beinvaxinn. Hár hefur hann misst, en alskegg iiefur hann, oddmyndað, og er það orðið grátt. Andlit hans er frítt, en það, sem mesta eftirtekt vekur, eru augu hans. Þau eru sérstaklega fögur, róleg og mild, móleit að lit. Svipurinn ber vott um frið, mildi og íhygli. Mér fannst hann minna á sumar myndir af Kristi. Hann brosir mjög fagurlega og yfirleitt er framkoma lians nijög fáguð, og það svo mjög, að mér fannst flest- ir aðrir ofurlítið grófir í návist hans, jafnvel jieir, sem annars urðu að teljast vel siðaðir, eftir }jví sem gerist hér á Vesturlöndum. Til er danskt spakmæli, þar sem málinu er líkt við silfur, en jiögn- inni við gull. Stór þáttur í kenn- ingum Bruntons er hin mikla áherzla, sem hann leggur á þögn- ina og rétta meðferð hennar, og það er ekki sízt þess vegna, að boð- skapur hans á svo rnikið erindi til Vesturlanda, inn í allan hávaðann jjar og hamaganginn. Ég hafði orð á því við Brunton, að ef hann kæmi til íslands, mundi hann jjar fá marga áheyrendur, því að hann væri þekktur þar og dáð- ur. Virtist mér jretta gleðja hann og hafði hann góð orð um, að láta ekki ísland verða útundan, ef hann tæki aftur upp fyrirlestrahald, en hann hefur ekki starfað með þeim liætti um margra ára skeið. í utanför minni 1952 var ég ekki fyrst og fremst að leita nýrra staða, þó að slíkt geti átt fullan rétt á sér, heldur manna. Ég var í sálar- leit. Og einn af þeim mönnum, sem varð mér ógleymanlegur og ég er jjess vegna jjakklátur fyrir að hafa kynnzt, er vissulega Poul Brunton. Mundi ég fagna því mjög, ef hann bæri hér einhvern tíma að garði, — þessi vestræni yogi, þessi gullgerðarmaður þagn- arinnar, sem með bókum sínum hefur gjörbreytt lífi margra manna og borið mikið ljós inn í efnis- hyggjumyrkur Vesturlanda. — Og Jjó að hann flytti ekki fyrirlestra, væri návist hans góð, og þögn hans ef til vill áhrifameiri en lang- ar ræður annarra manna. Og hann mundi „prédika á stéttinni" og prédika vel, eins og sagt var um suma gömlu prestana.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.