Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1967, Side 68

Eimreiðin - 01.09.1967, Side 68
248 EIMREIfílN ekki fyrst og i'remst, live mikið er leikið, sem gildir, þegar öllu er á botninn hvolft, heldur hvað það skilur eftir í vitund áhorfenda, bæði yfir og undir. „Galdra-Loft- ur“ i Þjóðleikhúsinu, þar sent Gunnar Eyjólfsson leikur aðal- hlutverkið, hlýtur að skilja tals- vert eftir, að minnsta kosti í huga eldri kynslóðarinnar, sem enn man óhugnað myrkursins í skamm- deginu, úti og inni. Gunnar leik- ur nafna af miklum tilþrifum, ekki vantar ]tað. Hann glímdi ungur við Loft, og lagði þá eins og gefur að skilja mesta áherzlu á það í fari hans, sem hann skildi bezt, gerði hann að rómantískum sveimhuga. í þetta skipti lagði hann mesta áherzlu á sálarumrót- ið og lék lilutverkið þannig, að Loftur varð nútíma hraða- og hávaða-fórnarlamb, gerbilaður á taugum og lífsvon hans einungis í því fólgin, að hann yrði lokað- ur inni á órólegu deildinni á Kleppi, áður en hann komst út í Hóladómkirkju. Eftir svo sem tíu ár mundi Gunnar eflaust geta sameinað þessa tvo Lofta sína í einn, er tæki öllum þeim Loftum fram, sem hér hafa sézt og heyrzt á leiksviði, og yrði þá hans fræg- asta hlutverk. En þá yrði líka að setja leikritið á svið eins og höf- undurinn gekk frá því. Það var skemmdaverk af hálfu leikstjóra að nema brott lokaatriði leiksins. Slíkt á ekki að láta viðgangast. „Hornakórall“ Odds Björnsson- ar á sviði Þjóðleikhússins táknar afstöðu ungu kynslóðarinnar til myrkramaktadufls liðinna kyn- slóða. Afstöðu rafljósakynslóðar- innar. Galdra-Loftur Odds er nú- tímalegt fyrirbæri, hann vill ná valdi á djöflinum með rafeinda- tækni og slíkum tilfæringum. Mon- sjör djöfull birtist, og er skemmti- legasti náungi í túlkun Róberts, minnir mjög á kölska þann, sem Oddaklerkur náði tökum á forð- um. Það væri verk fyrir kynslóða- sálfræðinga að bera þessa tvo Galdra-Lofta saman, Jóhanns Sig- urjónssonar og Odds Björnssonar. „Gríma“ sýndi „Jakob eða upp- eldið“ eftir Ionescu í Tjarnarbæ fyrir skömmu, bráðvel gerðan ein- þáttung í þýðingu Karls Guð- mundssonar og skemmtilega svið- settan undir stjórn Bríetar Héð- insdóttur. Ionescu er þar samur við sig og sínar persónur. Leik- endur skorti yfirleitt það, sem með þurfti til þess að gera þessu firru- verki viðhlítandi slc.il, en hin unga og vaxandi leikkona, Brynja Bene- diktsdóttir, stóð sig prýðilega. — „Gríma“ er nauðsynlegur leik- flokkur og þyrfti að eflast til átaka. Leikflokkur litla sviðsins sýndi tvö heldur ómerkileg prófverkefni að Lindarbæ, en flokk þennan skipa nýútskrifaðir nemendur úr leikskóla Þjóðleikhússins. Kevin Palmer hefur stjórnað æfingunum.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.