Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1967, Page 70

Eimreiðin - 01.09.1967, Page 70
Finnbogi Guðmundsson: AÐ VEST- AN OG HEIMAN. Leiftur h.f. Finnbogi Guðnnxndsson landsbóka- vörður hefur safnað hér saman ræð- um og greinum frá árunum 1951 — 1966. Hann gelur þess í formála, að mikill hluti þeirra hafi birzt áður og þá einkum í Lögbergi og Heims- kringlu, en Finnbogi dvaldist vestra nokkur ár sem kunnugt er, er hann var kennari í íslenzkum fræðum við Manitobaháskóla í Winnipeg (1951— 1956). I bókinni eru hvorki fleiri né færri en um 40 greinar og ræðui', enda kennir hér margra grasa. Höfundm- inn segir í formála: „Hafi ræður mín- ar og greinar átt erindi, þegar þær fyrst voru fluttar eða birtar, vona ég, að þær eigi það enn, og býð þær nii þeim, er hafa vilja til nokkurs fróð- leiks — og skemmtunar, ef svo mætti verða." Ekki tel ég nokkurn vafa geta leik- ið á því, að þetta verði vinsæl bók, ekki sízt meðal íslendinga vestra, vegna kynna íslendinga þar af höf- undinum, en einnig meðal fólks hér, sem liefur yndi af fróðleiksþáttum, skemmtilega rituðum, en það er einn af höfuðkostum Finnboga, að hann er, auk þess sem hann er lærður maður vel í sinni grein og virður vel og að makleikum, mikill stílisti og liúmor- isti, og á ekki langt að sækja þá kosti, því að faðir hans, dr. Guðmundur Finnbogason, var einn snjallasti ræðu- maður og ritgerðahöfundur (essayisti), tem þjóðin hefur átt. Mestan fróðleikinn er að sjálfsögðu að finna í ritgerðunum, og nefni ég þessar: Bókakista Ingimundar, Hring- urinn Hnituður. Frá ýmsum munum Stephans G. Stephanssonar. Ymsan fróðleik er líka að sækja í margar af ræðunum. Og þær bera því vitni, hve nxikill menningarkynnir Finnbogi lief- ur verið vestra. Ég tel bókina mikilvægt framlag til þess að treysta tengslin milli góðra, hugsandi manna, hvort sem þeirra heimarannur er ísland eða Vesturálfa. Og hafi Finnbogi þökk fyrir hana. Hún er einkar vönduð að frágangi. Myndir eru margar, teknar af Kjart- ani Ó. Bjarnasyni í myndatöku- og fyrirlestraferð þeirra um íslendinga- byggðir vestan hafs sumarið 1955. — Bókin er 196 bls. í stóru broti. A. Th. Þorsteinn Valdimarsson. FIÐRILDA- DANS. 88 fimmlinur. Heimskringla, Reykjavík 1967. Þorsteinn Valdimarsson liefur sýnt

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.