Eimreiðin - 01.09.1967, Qupperneq 70
Finnbogi Guðmundsson: AÐ VEST-
AN OG HEIMAN. Leiftur h.f.
Finnbogi Guðnnxndsson landsbóka-
vörður hefur safnað hér saman ræð-
um og greinum frá árunum 1951 —
1966. Hann gelur þess í formála, að
mikill hluti þeirra hafi birzt áður og
þá einkum í Lögbergi og Heims-
kringlu, en Finnbogi dvaldist vestra
nokkur ár sem kunnugt er, er hann
var kennari í íslenzkum fræðum við
Manitobaháskóla í Winnipeg (1951—
1956).
I bókinni eru hvorki fleiri né færri
en um 40 greinar og ræðui', enda
kennir hér margra grasa. Höfundm-
inn segir í formála: „Hafi ræður mín-
ar og greinar átt erindi, þegar þær
fyrst voru fluttar eða birtar, vona ég,
að þær eigi það enn, og býð þær nii
þeim, er hafa vilja til nokkurs fróð-
leiks — og skemmtunar, ef svo mætti
verða."
Ekki tel ég nokkurn vafa geta leik-
ið á því, að þetta verði vinsæl bók,
ekki sízt meðal íslendinga vestra,
vegna kynna íslendinga þar af höf-
undinum, en einnig meðal fólks hér,
sem liefur yndi af fróðleiksþáttum,
skemmtilega rituðum, en það er einn
af höfuðkostum Finnboga, að hann er,
auk þess sem hann er lærður maður
vel í sinni grein og virður vel og að
makleikum, mikill stílisti og liúmor-
isti, og á ekki langt að sækja þá kosti,
því að faðir hans, dr. Guðmundur
Finnbogason, var einn snjallasti ræðu-
maður og ritgerðahöfundur (essayisti),
tem þjóðin hefur átt.
Mestan fróðleikinn er að sjálfsögðu
að finna í ritgerðunum, og nefni ég
þessar: Bókakista Ingimundar, Hring-
urinn Hnituður. Frá ýmsum munum
Stephans G. Stephanssonar. Ymsan
fróðleik er líka að sækja í margar af
ræðunum. Og þær bera því vitni, hve
nxikill menningarkynnir Finnbogi lief-
ur verið vestra.
Ég tel bókina mikilvægt framlag til
þess að treysta tengslin milli góðra,
hugsandi manna, hvort sem þeirra
heimarannur er ísland eða Vesturálfa.
Og hafi Finnbogi þökk fyrir hana.
Hún er einkar vönduð að frágangi.
Myndir eru margar, teknar af Kjart-
ani Ó. Bjarnasyni í myndatöku- og
fyrirlestraferð þeirra um íslendinga-
byggðir vestan hafs sumarið 1955. —
Bókin er 196 bls. í stóru broti.
A. Th.
Þorsteinn Valdimarsson. FIÐRILDA-
DANS. 88 fimmlinur. Heimskringla,
Reykjavík 1967.
Þorsteinn Valdimarsson liefur sýnt