Eimreiðin - 01.09.1967, Qupperneq 74
254
EIMREIÐIN
í svipmóti landsins birtist það, sem er.
í tíbrá loftsins leiftrar það,
sem var, meðan landið
og tíbráin leika
á hvörfum þess leifturs, sem er,
og þess ljóss, sem var.
Bók Erlendar skiptist í þrjá kafla.
Fyrsti nefnist Dropar og sandkorn.
Annar kafli bókarinnar eru þýdd ljóð
eftir Englendinginn Charles Tomlin-
son. Nú er það virkilega góðra gjalda
vert að kynna verk erlendra ljóðskálda
íslenzkum lesendum, enda hefur þar
ekki veriö um auðugan garð að gresja.
Hitt er annað mál, að illa fer á því
að hafa þýdd ljóð og frumsamin í
sömu bók, og mundi ég telja það meg-
ingalla á bók Erlendar. Þýdd ljóð eiga
að koma fram á öðrum vettvangi, en
skilja verður sjónarmið höfundar, þar
sem ósennilegt er að íslenzkir útgef-
endur séu óðfúsir til að gefa út þýdd
ljóð.
Orð og andartak nefnist síðasti kafli
bókarinnar. Þar fjallar Erlendur um
hið daglega líf, og sannar um leið,
að hann á auðvelt með að ríma. Sum
kvæði í þessum kafla minna jafnvel
meira á tækifærisstökur en ljóð, t. d.
Alþingisríma liin nýja:
Á ég að segja þér að
ég er nú smeykur um það,
að þú hafir rangt fyrir þér
í þinni ræðu gegn mér.
Málstaður þinn er magur
og málflutningur ófagur.
Þú ættir því, satt að segja,
að setjast á rassinn og þegja.
Óhætt er að segja, að Erlendur Jóns-
son hafi með bók sinni Skuggar á
torgi skapað sér verðugan sess meðal
ungra, íslenzkra ljóðskálda, og vænta
má þess, að hann tryggi hann með
áframhaldandi yrkingum og útgáfu
bóka.
St. J. L.
ÍSLAND. NÝTT LAND. Leiftur h.f.
Þetta er mynda- og fróðleiksbók um
Island, með formála eftir Kristján
Eldjárn þjóðminjavörð, en William A.
Keith annaðist ljósmyndun og samdi
myndatexta.
Kristján Eldjárn lýsir vel hlutverki
bókarinnar:
„Hlutverk þessarar bókar er að
sýna og geyma myndir frá íslandi,
eynni miklu í Norður-Atlantshafi, sem
skáld ln fur sagt um, að líktist eng-
um löndum. Og skáld íslendinga hafa
verið miirg, og margt liafa þau sungið
um landið og átt sinn jrátt í þvi að
opna augu þjóðarinnar fyrir mikilleik
þess og sögulegum örlögum. í kjölfar
skáldanna komu myndlistarmenn og
sýndu þjóðinni land sitt í nýstárlegu
og undraverðu ljósi. Með skáld og
listamenn í fararbroddi hefur íslenzka
þjóðin á síðustu öld og þessari numið
land sitt öðru sinni og með nýjum
hætti... . Þessari bók er ætlað að vera
til minningar liverjum þeim, sem þeg-
ar hefur numið ísland á þennan hátt,
og til kynningar hinum, sem senn
munu feta í fótspor þeirra.“
Lesmál er á íslenzku, ensku og
Norðurlandamáli. Setningu, prentun
og bókband hafði með höndum fyrir-
lækið Frobenius AG, Basel (Sviss). —
Ljósmynd efst á bls. 52 er eftir Hreið-
ar Marteinsson. Uppdrætti innan á
spjöldum gerði Ragnar Lárusson.
Frágangur er að öllu hinn vandað-
asti. Bókin er kjörgripur, sem erlendir
ferðamenn, er ísland heimsækja, vafa-
laust hafa heim með sér — og tilvalin
er hún sem gjöf íslenzkra manna til
erlendra vina.
A. Th.