Eimreiðin - 01.01.1968, Blaðsíða 61
l.ISTA 1\1A XX A I.A UN
51
vera lög um listamannalaun, var það flestum ljóst, að ákvæðin um
skiptingu í launaflokka mundu leiða til þess að færri skáld, rithöf-
undar og aðrir listamenn mundu njóta launa en áður, miðað við
óbreyttar fjárveitingar Alþingis, ekki sízt meðan svo háttar til, að
laun til þeirra, er skipa heiðurslaunaflokk — en í hann hefur Alþingi
sjálft valið —, skuli tekin af þeirri heildarupphæð, sem veitt er á
fjárlögum til úthlutunar listamannalauna, og var í fjárlögum þessa
árs aðeins rúmar 4.2 milljónir króna.
Sú hefur líka raunin á orðið, að um það bil fjórðungi færri lista-
menn njóta nú launa en áður, þrátt fyrir fjölgun í öllum listgrein-
um. Það hefði því mátt ætla, að með setningu löggjafarinnar um
listamannalaun hefði Alþingi talið ástæðu til þess að láta fylgja
auknar fjárveitingar til listamanna, og ekki sízt nú, eftir að í Ijós
hefur komið, að úthlutunarfyrirkomulagið hefur leitt til svo stór-
kostlegs niðurskurðar, sem raun ber vitni.
Sjálfri úthlutunarnefnd listamannalanna virðist beinlínis hafa
blöskrað niðurstaðan eftir síðustu úthlutun, því að þá gerði hún
alyktun til Alþingis og menntamálaráðherra, þar sem segir meðal
annars svo:
„Það er eindregin skoðun nefndarinnar, að heiðurslaunaflokki
skuli ekki greitt fé af fjárhæð þeirri, sem ætluð er nefndinni til
úthlutunar listamannalauna, heldur verði ætluð sérstök fjárveiting
í þessu skyni.“
Og ennfremur segir í ályktun úthlutunarnefndar:
„Uthlutunarnefndin minnir á, að í reglugerð þeirri, sem hún á
að starfa eftir, er gert ráð fyrir sérstökum starfsstyrkjum. I.eggur
nefndin áherzlu á, að brýna nauðsyn beri til, að starfsstyrkirnir
verði sem fyrst að veruleika.“
Meðan það er viðurkennt og talið eðlilegt, að skáld, rithöfundar
og aðrir listamenn njóti listamannalauna og heiðurslauna, bæði sem
umbun fyrir störf þeirra og jafnframt með tilliti til þeirrar aðstöðu
— eða réttara sagt aðstöðuleysis —, sem þeir hafa til þess að lifa af
listsköpun hér á landi, er núverandi fjárveiting Alþingis algerlega
ófullnægjandi og út í bláinn, eins og meðal annars má marka af
því, að af rúmlega 4(i0 meðlimum Bandalags íslenzkra listamanna,
skuli úthlutunarnefnd listamannalauna einungis hafa séð sér fært
að úthluta 95 manns.