Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1971, Qupperneq 51

Eimreiðin - 01.01.1971, Qupperneq 51
ASKAN 47 umsjá voru börnin sem ærsluð- ust og léku öllum stundum. Þær unnu að heimilisverkum og hjálpuðu bændum sínurn við störf þeirra. Á hvíldartímum lögðu þær oft leið sína að tjöld- um sölumannanna, sem voru langt að komnir, og þær gleymdu sér að kvenna sið við að hand- fjatla hinn mikla fjölda haglega gerðra hluta, sem þeir ávallt höfðu í varningi sínum. Þar gat að líta undurfallegar útskornar hirzlur úr sedrus og olíuvið. Marglita dúka af purpura og skarlati, íofna furðulegustu kynjamyndum og táknum. Dýr- indis línklæði og glitvefnað sem sló með mýkt sinni á strengi ímyndunaraflsins. Listaverk srníðuð af gulli, silfri og eir, með leyndardómsfullum ígreiptum steinum. Gullmen, armbönd og hringar, settir smarögðum, kór- úndum, tópösum og ónyx frá fjarlægustu heimshornum, hræðru hug þeirra og hjarta, þegar þau glömpuðu í ótrúleg- ustu litum móti sólbrúnu hör- undi þeirra, smurðu ilmolíum. Þær undu vel við að skoða and- lit sín í vel gerðum eirspeglum, sem höfðu umgjarðir úr mynd- skreyttum kopar, alsettum safír- um og jaspis. Þar fengu þær drukkið vín úr fagurlega skreytt- um bikurum, í reykelsisþrung- nu andrúmslofti dagdraumsins. Og eins og kaupmennirnir þekktu, keyptu þær í leiðinni kryddjurtir, salt og ódýra dúka úr tvinnaðri baðmull. Þannig voru allir ánægðir og hamingju- samir, og enginn gekk á annars hag. Og þannig hafði það alltaf verið. Allt þetta sá einbúinn á fjall- inu og augu hans fylltust af ást til mannanna, því að hann vissi að framtíðin var þeirra. En það var einn, aðeins einn, agnúi sem æ oftar firrti hann friði og angr- aði huga hans. Ein lítil misfella sem kom í veg fyrir að allt væri fullkomið í þessunr heimi sem hann svo elskaði. Og liann var hinn eini sem hún var ljós, og því var hann einnig hinn eini sem gat fundið á henni bót. Og hann var staðráðinn í að endur- gjalda mönnunum allar þær stundir falslausri gleði, sem þeir óafvitandi höfðu fært honum. En hvernig mátti það verða? Löng- um sat hann djúpt sokkinn í hugsanir sínar og leitaði að úr- ræði sem gera myndi heiminn fullkominn. Og smám saman kviknaði með honum hugmynd sem þróaðist og gagntók huga hans. Og því meir sem hann velti henni fyrir sér, þeim mun fyllri varð ánægja hans. Þannig var það eitt sinn, skömmu eftir sólarupprás, að hann gerði boð fyrir þann mann sem virðingarmestur var meðal fólksins. Sá kom hinn sama dag
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.