Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Page 39
RAGNHILDUR BJARNADÓTTIR
kunnáttunni (sbr. skilgreining á hæfnihugtakinu hér að framan). Annar nemi hefur
enn áhyggjur af getublöndun:
- Ég hræðist mjög getublandaða bekki og þá hugsun að koma ekki öllu til
skila þannig að allir skilji, ég hræðist það að ná ekki markmiðum mínum
og þá lenda í því að miða kennsluna bara við getumeiri nemendur.
Þessi nemi setur sér háleit fagleg markmið, og er greinilega að glíma við þau, enda
þótt hann/hún telji sig ekki hafa náð nægjanlegum árangri. Þarna kemur greinilega
fram að hugmyndafræði nemans hefur áhrif á þær kröfur sem gerðar eru um eigin
hæfni.
Enda þótt sú starfshæfni sem nemarnir eru að byggja upp virðist einkum felast í
að geta gert eitthvað ákveðið, sem þarf persónulegan styrk til að ráða við, bera svörin
með sér að fagleg hlið starfshæfiiiimar - að vita, kunna og ígrunda - hefur meiri áhrif
hjá mörgum en þeir gera sér grein fyrir. Jafnframt er ljóst að mikill einstaklingsmun-
ur er á því hvar bæði veikleikar og styrkur einstaklinga liggur.
Veikleikar og styrkur
Markmið viðtalanna var að dýpka skilning á starfshæfni þátttakenda, þ.e. á því
hvernig það að geta gert tengist öðrum hliðum starflTæfninnar, því að vera, að
þekkja/vita og að ígrunda. Þrjú viðtöl eru valin til að lýsa breidd í nemendahópnum.
Þátttakendum eru gefin tilbúin nöfn.
Viðtal við Ara. Hann er spurður um hvað skorti til að hann ráði við viðfangsefni
kennarastarfsins. Ari segir:
Mér finnst reynslubankinn vera lítill. Mér finnst ég núna fyrst, á þessari önn vera farinn
að skynja hvað góður kennari þarf að hafa til að vera góður kennari. Að mínu mati þarf
hann að geta kennt út frá bömunum, þá meina ég að kennslan þarf að miðast við ein-
staklingana. Hann þarf að nálgast börnin á þeirra forsendum. Það er sama á hvaða aldri
börnin eru, hann þarf alltaf að geta notað sína hæfileika og kunnáttu þó að hann þekki
námsefnið lítið. Börnin verða að fá tækifæri til að byggja ofan á sinn þekkingarbanka,
nám má ekki verða nein ítroðsla eða prédikun heldur tengt því sem börnin skynja sjálf.
Þau læra ekkert öðruvísi ... Mér finnst ég vera farinn að skilja það að þetta er markmið
sem ég þarf að nálgast. En hvort ég er orðin hæfur til þess að ná því held ég ekki. Ég held
að það komi bara með æfingunni.
Greinilegt er að Ari lýsir þarna ekki síður styrk sínum en veikleikum. Styrkurinn felst
í að hann er að móta faglega sýn. Hann kemur með annað dæmi um veikleika, sem
sýnir að ígrundun er stór þáttur í þeim styrk sem hann er að þróa með sér.
Eg er sennilega lélegasti kennarinn til að fara kenna n og nn reglu eða ng og nk, þó svo
að ég sé á íslenskukjörsviði. Það verður virkilegt vandamál ef ég á að „troða" reglum
upp á nemendur því þar er ég slakur. En ég get þó vonandi sagt það sem kennari að ég
sé slakur í þessum reglum án þess að það eigi eftir að bitna á mér sem kennara. Það er
mikilvægur póstur að maður getur ekki ætlað sér að vera einhver alfræðiorðabók þó svo
að maður sé kennari.
37