Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Page 54
„A EG AÐ VERA MEÐ ÞVILIKUM KERLINGUM I BEKK?"
í skólann haustið '75 af því ég var orðin ófrísk. Ég ætlaði að taka mér frí
eitt ár, en þau urðu aðeins fleiri ... Ég átti annað barn '77 og flutti í sveit,
var allt í einu orðin bóndakona ... Og svo átti ég [orðið] þrjú börn árið '91
þegar ég heyrði að fjarnám var byrjað í Fósturskólanum ... þá fékk ég öll
plöggin, en það varð ekkert úr því. Og svo bara þegar tímar liðu, dóttir
mín var flutt að heiman og sonurinn fermdur og svona, þá bara hugsaði
ég: Jæja það er annað hvort nú eða ekki. Og svo sótti ég bara um '99 og
byrjaði.
Þegar þátttakendur ræddu um viðbrögð nánasta umhverfis við því að þeir væru að
fara í leikskólakennaranám höfðu þeir nokkuð misjafna sögu að segja eftir því hver
bakgrunnur þeirra var. Þær sem höfðu stúdentspróf höfðu yfirleitt fengið neikvæð
viðbrögð. Þær konur sem höfðu ekki lokið stúdentsprófi og höfðu á sínum tíma átt
erfitt uppdráttar í skóla töluðu hins vegar um að þær hefðu fengið jákvæð viðbrögð
frá sínu fólki þegar þær fóru í námið. Það er einkum þrennt sem virtist einkenna þau
viðbrögð sem stúdentarnir fengu. I fyrsta lagi fannst fólki staða þessa náms vera léleg
og furðaði sig á að þær veldu að fara í leikskóiakennaranám þar sem launin væru lág.
í öðru lagi fannst þeim lítill skilningur vera á því að þær þyrftu á háskólagráðu að
halda til að vinna í leikskóla með litlum börnum. Einn yngri nemanna sagði:
Já maður fékk nú reyndar að heyra það: Ætlarðu að fara í svona láglauna-
stétt? Eða: Hvað ertu að fara að læra að snýta og skeina?
Ein eldri kvennanna, sem var með stúdentspróf, sagði:
Tengdamóðir mín sem er að verða 72 ára, henni finnst þetta skrýtið að
kona sem er búin að ala upp þrjú börn skuli ætla að drífa sig í skóla til að
læra að passa börn.
I þriðja lagi töluðu eldri konurnar um að mörgum hafi fundist það óþarfa brölt hjá
konum sem komnar voru á tiltölulega þægilegt skeið í lífi sínu að setjast á skólabekk.
Ein úr eldri hópnum sagði að fólki hefði fundist að nú ætti hún að fara að hafa það
gott. Börnin komin á legg og þá ætti hún ekki að vera streða í námi. Hún hefði verið
spurð að því hvort hún væri ekki komin á leikhúsaldurinn.
Nemendahópurinn
Aldursmunur nemendanna var töluvert mikill. Þeir yngstu voru um tvítugt og höfðu
nýlokið stúdentsprófi er þeir hófu námið, en þeir elstu voru á sextugsaldri og höfðu
ekki verið í skóla í yfir 20 ár. Eldri nemunum fannst þessi aldursmunur ekki skipta
miklu máli og sögðust ekkert sérstaklega hafa fundið fyrir þessum aldursmun. Þeir
hefðu unnið lengi í leikskólum þar sem mikið væri um ungt fólk. ] háskólaumhverf-
inu höfðu þeir aftur á móti áhyggjur af því að þeir töluðu of mikið í tímum og væru
að skemma fyrir þeim yngri með því. Yngri nemendurnir töluðu hins vegar um að í
52