Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Page 114
NÁMSSTÍLl NOKKURRA FJARNEMENDA
skipti nemenda og kennara i nútímafjarnámi fara fram með hjálp netsins og ýmiss
konar fjarskiptabúnaðar (Nummi, Rönka og Sariola, 1998:8-9).
Fjarnámið við KHÍ fellur undir hina almennu skilgreiningu á fjarnámi þ.e. nem-
endur og kennarar eru aðskildir að hluta eða öllu leyti meðan námið fer fram. Fjar-
námi við KHÍ er skipt í staðbundnar lotur og fjarnámslotur. Staðbundnu loturnar eru
mislangar eftir deildum, frá tveimur dögum upp í tvær vikur. Skólinn býður upp á
fjarnám í öllum grunndeildum og framhaldsnámið við skólann fer fram með fjar-
námi. í fjarnáminu hefur áhersla verið lögð á mismunandi kennsluaðferðir og að
nemendur geti lært hvar sem er og hvenær sem er innan þess tímaramma sem skól-
inn og kennarar setja.
Ég er ein af þeim sem hóf fjarnám við KHÍ um síðustu aldamót og varð reynsla
mín af fjarnáminu við skólann kveikjan að þeirri rannsókn sem grein þessi er byggð
á. Rannsóknin var meistaraprófsverkefni mitt við KHI og voru leiðbeinendur mínir
dr. M. Allyson Macdonald, forstöðumaður Rannsóknarstofnunar KHI og dr. Sólveig
Jakobsdóttir dósent við KHI.
Reynsla mín af fjarnáminu varð til þess að opna augu mín fyrir nýjum kennslu-
háttum og nýjum leiðum til að greiða fyrir aðgengi fólks að menntun. Margir þeirra
sem hófu fjarnám um leið og ég höfðu litla tölvukunnáttu en flestir voru fljótir að
læra á tæknina. Af nauðsyn urðu fjarnemendur að læra að nota tölvu við nám sitt,
m.a. ritvinnslu, á samskiptaforrit og við leit upplýsinga á netinu.
Ég stóð einnig frammi fyrir því að ég yrði að breyta námsstíl eða námsaðferðum
mínum í samræmi við það námsform sem ég kynntist í fjarnáminu. Ég sá að samnem-
endur mínir urðu að gera hið sama og reyndist sumum það erfiðara en öðrum.
Námsstíllinn hjá mér breyttist frá því að ég stundaði hefðbundið nám fyrir
mörgum árum. Ástæður fyrir breyttum námsstíl geta verið margar, en vegna breyt-
ingarinnar langaði mig til að skoða námsstíl hjá öðrum fjarnemendum á háskólastigi
og athuga hvort tengsl væru milli fjarnáms sem námsforms og námsstíls þeirra og
kanna jafnframt það námsumhverfi sem KHÍ býr fjarnemendum og notkun upplýs-
inga- og samskiptatækni í námi og kennslu við skólann.
FRÆÐILEGUR BAKGRUNNUR
Námsstíll
Margir fræðimenn hafa skilgreint hugtakið námsstíll og er einn þeirra Guðmundur
B. Arnkelsson sálfræðingur. Hann skilgreinir námsstíl sem „aðferðir og aðstæður sem
einstaklingur kýs að hafa við nám sitt" (2000:54). Ég mun styðjast við skilgreiningu
Guðmundar í þessari grein.
Bandarísku fræðimennirnir Rita og Ken Dunn hafa birt námslíkan sem byggist á
niðurstöðum rannsókna sem hafa verið gerðar á 30 ára tímabili (Dunn, 1999; Dunn
og Dunn, 2003; Wynen, 2001). Námslíkanið samanstendur af áreiti og þáttum. Áreit-
in eru umhverfisleg, tilfinningaleg, félagsleg, lífeðlisfræðileg og sálfræðileg. Áreitun-
um er skipt niður í misjafnlega marga þætti eins og sést á töflu 1. Námslíkanið hefur
töluvert verið notað til viðmiðunar í rannsóknum á námsstíl fólks. Kjarninn í heim-
112