Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Side 144

Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Side 144
U M BÆKUR verið þarflegt að tímasetja sumar myndirnar sem slíkar upplýsingar skortir um (sjá t.d. opnumynd bls. 108-109,135 og 136). Hin þríþætta uppbygging verksins, sem gerð var grein fyrir í upphafi, vekur vænt- ingar um að höfundur kappkostaði að rekja samspil þáttanna og gagnkvæm áhrif í ríkari mæli en raun ber vitni á. Til þess hefði þurft fastari efnistök og meiri úrvinnslu efnis en hann hefur séð sér fært að ráðast í. Að sögn Árna Daníels „væri hægt að gera ítarlega og spennandi félagssögulega rannsókn á skólanum og hlutverki hans í sam- félaginu með þeim heimildum sem fyrir liggja í skjalasafni Barnaskólans á Eyrar- bakka og Stokkseyri" (s. 9). Þessu verkefni vísar höfundur aftur á móti til seinni tíma sagnfræðinga. í framhaldi af þessu skal vikið að smærri atriðum varðandi meðferð heimilda, frá- gang og framsetningu. Þessum atriðum er í mörgu verulega áfátt. Á nokkrum stöðum skortir á að vísanir til heimilda séu nægilega skýrar (sjá beinar tilvitnanir bls. 33, 39, 48 (neðst), 65 (á miðri bls.), 68). Þá kemur fyrir að vitnað er beint í frumheim- ildir eftir öðrum höfundum (eftirheimildum), hvað getur ekki talist fagmannlegt verklag (sjá bls. 118-119). Frágangur á töflum er heldur ekki gallalaus: þær eru ekki tölusettar og engin skrá er birt yfir þær eins og til mætti ætlast í fræðiriti. Þetta veldur m.a. óljósum tilvísunum í töflur í meginmáli (sjá t.d. bls. 19 þar sem vísað er í skakka töflu; taflan sem við á er á bls. 22-23). Á tveimur stöðum í meginmáli (bls. 19 og 70) eru nefndar tölusettar töflur þótt töflur séu yfirhöfuð ekki tölusettar í fyrirsögn, eins og áður er tekið fram. í nokkrum tilvikum hafa staðreyndir skolast til. Barnaskóli er sagður hafa verið rekinn í Reykjavík á tímabilinu 1826 til 1848, en starfaði í reynd 1830-1849 (sjá Ármann Halldórsson: Saga barnaskóla í Reykjavík til 1930, bls. 17-32). Á einum stað (bls. 84) er Kennaraskóli íslands sagður stofnaður 1909, en á tveimur öðrum stöðum (bls. 107 og 127) er hann réttilega sagður stofnaður haustið 1908. Magnús Helgason er réttilega nefndur skólastjóri Kennaraskólans á tveimur stöðum (bls. 73 og 84) en ranglega kallaður rektor á öðrum stað (bls. 84). Þá er ónákvæmt að segja að „lenging skólaskyldu niður á við, til 7-9 ára barna" hafi ekki komist til framkvæmda fyrr en um 1936. Skv. lögum um fræðslu barna 1926 var bæjarfélögum heimilt að skylda 7-9 ára börn til að sækja skóla, og allmörg þeirra notfærðu sér heimildina (sjá t.d. Steinn Stefánsson: Skólasaga Seyðisfjarðar, bls. 80-81; Stefán Hjálmarsson: Skóli í 100 ár. Skóiahald á Akranesi 1880-1980 (Akranesi, 1987), bls. 63-66). Ekki er ósennilegt að þessu heimildarákvæði hafi í einhverjum tilvikum verið beitt á Eyrarbakka og Stokkseyri fyrir 1936 þótt ekki komi það fram í frásögn Árna Daníels. Ekki hefur verið vandað sem skyldi til yfirlesturs texta og prófarkalesturs. Margar prentvillur óprýða textann og svipað má segja um ósamkvæmni í greinarmerkja- setningu. Talsvert ósamræmi er líka í færslu tilvitnanaskrár bls. 262-269. Hér hefði að ósekju mátt spara vissar bókfræðilegar upplýsingar sem fram koma hvort sem er í heimildaskrá bls. 270-273. Þá eru reglur um skiptingu orða milli lína víða virtar að vettugi. Dæmi: bls. 56: pró-fast (þolfall af prófastur); bls. 62: ásigko-mulag; bls. 183 (myndatexti): ken-nari; kennar-apróf; bls. 199: tölvuri-tari. Á nokkrum stöðum gætir klúðurs í orðalagi sem auðveldlega hefði mátt sneiða hjá. Dæmi: bls. 22: Fiskveiðar 142
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.