Ægir - 01.02.1945, Side 15
Æ G I R
37
Tafla VIII. Veiðiaðferðir stundaðar af fiskiskipum í Vestfirðingafjórðungi
í hverjum mánuði 1944 og 1943.
Uotnvörpu- veiði i ís Þorskv. með lóð ognetum Dragnóta- veiði Síldveiði með herpin. Sildveiði með rekn. Isfisk- fiutn. o. fi. Samtals 1944 Samtals 1943
Tala skipa Tala skipv. Tala skipa Tala skipv. Tala skipa Tala skipv. Tala skipa Tala skipv. Tala skipa rt Z '2 v: Tala skipa Tala skipv. Tala skipa Tala skipv. « 5 rt ^ r-1 v Tala skipv.
Janíiar . 3 81 46 443 » » » » » » » » 49 524 68 614
Kebrúar 4 110 52 497 » » » » » » » » 56 607 68 633
Marz ... 4 93 61 593 » » » » » » 3 30 68 716 92 768
April... 6 111 124 745 » » » » » » 3 32 133 888 128 930
Maí .... 6 109 162 865 » » » » » » 4 37 172 1011 194 1103
Júni .. . 6 108 149 647 24 123 » » » » 1 11 180 889 213 1043
Júli.... 3 84 83 344 16 75 19 281 » » » » 121 784 144 864
Ágúst .. 4 92 43 175 19 92 20 287 8 47 1 10 95 703 94 722
Sept. .. . 2 56 38 202 14 67 17 262 2 15 » » 73 602 70 606
Okt. ... 2 56 74 413 6 26 » » » » 3 24 85 519 89 569
Nóv. .. . 3 84 92 516 1 6 » » » » 3 26 99 632 105 692
Des. ... 3 84 76 524 » » » » » » 3 24 82 632 80 609
og ollu því að nokkru ógæftir, en um tíma
iiin haustið var allgóður afli.
Á Bíldudal og í Arnarfirði var afli dá-
góður um vorið. Dragnótaafli var einnig
allgóður um sumarið. Seint um haustið og
fram í desember var afli góður þar.
Frá Þingeyri var mjög litil útgerð á ár-
inu. Afli var þar sæmilegur og góður um
tíma um veturinn og vorið.
Vetrarvertíðin á Flateyri var aflasæl, en
ógæftir hömluðu mjög sjósókn framan af
'’ertið. Vor- og sumarvertíð var allslitrótt
iijá hinum stærri bátum, en smærri bátar,
sem stunduðu liandfæraveiðar um vorið
og kolaveiðar með netjum, fengu dágóðan
afla.
Á Suðureyri var afli góður á vetrarver-
tíð, en gæftir stirðar, og einnig hamlaði
hafís veiðum um tíma. Eins og á Flateyri
stunduðu smærri bátar handfæraveiðar og
kolaveiðar með netjum með góðum ár-
angri um vorið. Haustvertíð var allgóð
framanaf, en í nóvember og desember
tregðaðist aflinn.
1 veiðistöðvunum við Djúpið, þ. e. Bol-
nngavík, Hnifsdalur, Isafjarðarkaupstaður
og Álftafjörður, var afli yfirleitt mjög góð-
ur framan af vetrarvertíðinni, einkum í
janúar og febrúar, þótt nokkrar frátafir
yrðu vegna stirðra gæfta og hafíss. Þó
töfðust bátar úr Bolungavik minna frá af
þessum orsökum en bátar annars staðar
að úr Djúpinu. Um vorið var afli yfirleitt
tregur. Sumarveiðar með línu voru stund-
aðar slitrótt, en draganótaveiðar nokkuð,
og var afli yfirleitt dágóður. Um haustið
voru gæftir mjög slirðar framan af, en er
kom fram í nóvember batnaði tíðin og var
afli.góður eftir það.
Nokkrir bátar stunduðu reknetjaveiðar
um sumarið og öfluðu dável.
I hinum smærri veiðistöðvum við Djúp-
ið, í Ögurhreppi, Grunnavík, Hesteyri, svo
og' Aðalvík á Ströndum, var afli yfirleitt
góður framan af vori, nema í Ögurhreppi.
Um haustið var aflinn í Ögurlireppi góður,
en aftur tregur á liinum stöðunum.
í Steingrímsfirði var afli allgóður fram-
an af vori, en tregðaðist síðan. Um haustið
var afli talinn í góðu meðallagi og gæftir
sæmilegar.
Verkun aflans á Veslfjörðum var með
sama hætti og annars staðar. Var megin-
hluti aflans fluttur út ísvarinn, en allmikið
fór þó í frystihús. Um söltun var ekki að
ræða svo neinu næmi.
c. Norðlendingafjórðungur.
Útgerð í fjórðungnum er elcki talin
hafa byrjað fyrr en með febrúarmánuði,