Ægir

Volume

Ægir - 01.02.1945, Page 25

Ægir - 01.02.1945, Page 25
Æ G I R 47 Skipting aflans á ínánuðina var ekki ýkjamiklum breytingum háð. Þó voru tveir fyrstu 1 mánuðir ársins áberandi lægstir, en aftur á móti var maí hæstur. Um þriðji hluti aflans kom á tímabilið marz—mai, eða seinni hluta vetrarvertíð- arinnar. Skýringarinnar á hinu litla afla- magni í janúar og febrúar er að nokkru leyti a. m. k. að ieita í því, að í þeim mán- uðum voru flest skipanna frá veiðum af ýmsum orsökum, aðallega sakir viðgerða. Kom um þriðji hluti legudaga togar- anna á árinu á þá tvo mánuði. Aftur á móti voru legudagarnir fæstir í apríl og maí svo og desember. Tvær fisktegundir voru yfirgnæfandi í togaraaflanum á árinu. Voru það ufsi og þorskur (sbr. töflu XVIII). Stærstur var hluti ufsans 48.8% af aflanum, en þorsk- urinn með 37.6%. Næst lcom ýsan með 7.5% og karfi með 2%. Aðrar tegundir voru ekki teljandi. Allir flatfiskarnir námu tæplega 1%. Það, sem talið er í töfl- unni ósundurliðað, mun aðallega hafa ver- ið steinbítur, keila, langa og skata. Þorskaflinn var aðallega á vetrarver- tíðinni, og að undanteknum marzmánuði var hann yfirgnæfandi, en í þeim mánuði uði var ufsinn rúmlega 62% af aflanum. Mestur varð ufsaaflinn hlutfallslega um sumarið og' haustið og komst allt upp í 75% i nóvember. r 4. Isfisksala. Siglingar togaranna með ísvarinn fisk, svo og annarra skipa, voru með svipuðum hætti og árið áður. Alls íoru togararnir 387 söluferðir með fisk, en 336 árið áður (sbr. töflu XVII). Hafa aldrei verið farnar fleiri söluferðir á einu ári að undanteknu árinu 1940. Var tala ferðanna mest seinni hluta vetrarver- tíðarinnar, enda er þá að jafnaði mestur aflinn. Flestar voru ferðirnar i maí, 47 að tölu. Seldu togararnir eins og áður fisk sinn á markaði í Bretlandi og voru þar að sjálf-

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.