Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1945, Síða 43

Ægir - 01.02.1945, Síða 43
Æ G I R 65 Björgvin Frederiksen: Starfshættir í frystihúsum. Góðix- tilheyreridur! ég hef lofað að segja hér nokkur orð um hraðfrystingu á fiski, en þó ekki nema litið eitt um hina tæknislegu hlið málsins. Það, sem mestu varðar innan verkalirings ykkar vei'kstjóranna, er fyrst og fi’emst að skapa vinnuafköst, vöruvöndun og síðast en ekki sízt að hafa áhrif á vinnugleði stai-fs- fólksins með nánu og góðu samstarfi við það og sem fulltrúar fyrir bættri aðbxið þess og bættum vinnuskilyrðum. Eins og við vit- um allir, mun samkeppni verða mjög hörð á markaði hraðfrystra afurða að stríðinu loknu, og er því tvímælalaus nauðsyn að gera sér nú þegar ljóst, að vel verður að vera á verði um þær nýjungar í vélum, tækj- um og vinnuaðferðum, sem líklegar eru til að auka framleiðsluna og urn leið að lækka framleiðslukostnaðinn. ' Leiðimar til þess arna eru enn þá margar, ef miðað er við núvei-andi starfsaðferðir og vélakost margra frystihúsanna. Það er ekki nóg að hafa frystivél. Það þarf að hafa rétta gerð véla i hverju ein- stöku tilfelli. Enn þá eru ekki til nema ör- fáar vélasamstæður af þeim, sem okkur mundi henta bezt hér. Á ég þar við, að helzt allur fiskur ætti að hraðfi-ystast með svo- nefndum tveggja þrepa vélum og tækjum, sem þeim tilheyra, en ég mun ekki fara nán- ar út í það hér. En við ykkur verkstjórana vil ég segja það, að eftir að eigendur hi-aðfrystihúsanna hafa aflað þeirra véla og tækja, sem tilheyra fullkomnum frystihúsum, þá kemur að ykk- ar hlutverki að þjálfa fólk til að beita tækj- unum á hagkvæmastan hátt og samstilla hvort tveggja undir eina skiixulega stjórn, en það er grundvallaratriði fyrir góða og samkeppnisfæra framleiðslu. útflutningsvara, og er þetta ætlað íslend- ingum til matar. Hér er á ferðinni þjóðar- skömm — og meira en það. Ég hef orðið þess var, að fjöldi fólks í Reykjavík þorir ekki að kaupa frosinn fisk sökum þess, að það hefur fengið hann slæman, af þessum ástæðum. Svo eru það fleiri en íslendingar sjálfir, sem borða fisk, seldan í fiskbúðum.. Fyrir þetta á að taka með öllu. Það á ekki að vera leyfilegt að setja neinn fisk i umbúðir til neyzlu annan en þann, sem er útflutninghæíur, sem kallað er. Allt annað er í hæsta lagi refafóður, enda á slíkur fiskur ekki að geta orðið til, ef þeir menn, sem innkaup, geymslu og verkun annast, eru sínum störfum vaxnir. Að endingu skal á það bent, að það er alveg óviðunandi ástand, sem nii ríkir, að fiskur sem er seldur í skip og flutlur ís- varinn til Englands, skuli ekki vera mat- skyldur. Þetta hefur valdið frystihúsunum geisimiklum örðugleikum um vöruvöndun og efniskaup. Það segir sig sjálft, að þegar um sanxa verð er að ræða í báðum stöð- um, strangt mat í öðru tilfelli en ekkert í öðru, hverjar afleiðingarnar verða. Ég mun nú ekki hafa þessa skýrslu lengri að þessu sinni, þótt liér sé stiklað á slóru, enda er það nokkurt verkefni fyrir hlutaðeigendur að kippa öllu framan- greindu í lag. Ég ætlast til afi skýrsla þessi verði liöfð til hliðsjónar við samixingu á alhliða reglugerð, senx unx þessi mál þarf að setja, eigi siðar en fyrir 1. janúar 1945.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.