Ægir - 01.02.1945, Blaðsíða 56
78
Æ G I R
Síldarverksmiðjan
Mynd sú, er hér birtist, sýnir liina nýju
sildarverksmiðju við Ingólfsfjörð og ýmis
mannvirki í sambandi við hana. Verk-
sxniðja þessi var i smíðum 1942—1944 og
starfaði í fyrsta sinn síðastliðið sumar.
Verksmiðjan er gerð fyrir 5000 mála af-
köst á sólarhring, en enn hefur ekki verið
hægt að fá til hennar allar vélar, og með-
an svo er, verða afköst hennar ekki nema
2500—3000 mál. Síldarþrær verksmiðj-
unnar rúma 20 þús. mál síldar, olíugeymar
2500 smál. síldaroliu og mjölhúsið 3000
smál. af síldarmjöli. Sjálfvirk löndunar-
tæki eru tvenn og geta þau landað um 1000
málum á sólarhring. Sildarstöðvar þær, er
fyrir voru i Ingólfsfirði, hefur fyrirtækið
keypt, en aðra þeirra hafði Th. Thorsteins-
son reist 1919, en hina Ólafur A. Guð-
mundsson kaupinaður 1930. Athafnasvæði
vei’ksmiðjunnar er því rúmt, eða 2—3
hektarar á stærð.
Þórður Runólfsson verksmiðjuskoðun-
arstjóri sá um fyrirkomulag á byggingum
og vélaútbúnaði. Helgi Eyjólfsson bygg-
ingarmeistari stóð fyrir byggingunni með
vinnuflokki og umsjá verkstjóra sinna,
jxeirra Sveins Pálssonar múrarameistara
og Hjartar Hafliðasonar trésmiðameist-
ara. Vélar voru að miklu leyti frá Vél-
smiðjunni Héðni, sem einnig smíðaði sjálf-
virku löndunartækin.
Síldarverksmiðjan við Ingólfsfjörð er
eign Síldarverksmiðju Ingólfs h.f., en eig-
endur þess eru Beinteinn Bjarnason út-
gerðarmaður í Hafnarfirði og Geir Thor-
steinsson útgerðarmaður í Reykjavík, og
er Geir framkvæmdarstjóri fyrirtækisins.
Siðastl. sumar lögðu sjö skip upp afla
sinn í verksmiðjuna og bræddi hún þá alls
úr um 100 þús. málum.
Gott er til þess að vita, að þarna skuli
vera komin verksmiðja, því vel liggur Ing-
ólfsfjörður við fyrir vestursvæði síldveið-
anna.