Ægir - 01.02.1945, Síða 58
80
Æ G I R
Jaktamál.
Margt var með nýja brumi fyrir íslenzka
sjómanninn, er kynni tókust með honum
og skútunni — þessari þiljuðu fleytu — er
gat farið um allar rastir í samanburði við
opnu bátana. Margir voru þar hlutirnir,
sem hann kunni ekki heiti á. Hann fékk
þó að heyra nöfn á þeim, en ekki lét hon-
um ætíð vel að hal'a þau eftir. Danskan
lét ekki vel í munni hans, það var í raun-
inni hvorki danska né íslenzka, sem hann
talaði, heldur nýtt mál, svo kallað jakta-
mál. Ýmsar sögur hafa gengið af þessu
sérkennilega tungutaki ísl. sjómanna, en
margt af því hefur verið ýkt og afbakað.
Hins vegar lifðu mörg orðskripi frá byrj-
un skútualdar ótrúlega lengi, og má vel
vera að enn hjari eitthvað af þeim.
Walgarður gamli Breiðfjörð gaf eitt sinn
út blað í höfuðstaðnum, er hann nefndi
„Reykvíking“. Var þar aðallega rætt um
bæjarmálefni, en einstöku smáklausu um
annað efni var þó skotið þar inn. í septem-
ber 1891 kom ein slík klausa í „Reykvík-
ing“, og nefndist hún „Sýnishorn af jakta-
máli á Breiðafirði um 1850“. Hversu trútt
þetta sýnishorn er, veit ég ekki, né heldur
hvaðan það er komið í hendur Breiðfjörðs.
Líklegt er þó, að hann hafi fengið þennan
samsetning frá einhverjum Breiðfirðing,
því að þá þekkti hann marga. Ekki er held-
ur loku skotið fyrir, að Breiðfjörð hafi
sett þetta saman sjálfur og þá stuðst við
æskukynni sín af breiðfirzkum jökturum.
„Sýnishornið" er þannig orðrétt:
„Bóndi kemur aðvífandi og mætir jakt-
arformanni, heilsar honum og spyr hvern-
ig honum hafi gengið í sumar.
Formaðurinn svarar: „Ég' hef haft sver-
an brekk oft og títt í sumar, og núna fyrir
renna í ríkissjóð. Verði hins vegar tap á
starfsemi sjóðsins, greiðist það úr hinum
130 millj. kr. sjóði.
Fiskaflinn 31. des. 1944.
(Miðað við slægðan flsk með haus.)
Des. Jan.-des. Jan.-des.
1944 1944 1944
Fiskur, ísaður: smál. smál. smálé
a) í útflutningsskip.. 1 475 91 045 89 129
b) Afli fiskiskipa útfl.
af þeim 6124 83 995 74 768
Samtals 7 609 175 044 163 895
Fiskur til frystingar. 1 242 55 207 31 833
Fiskur i herzlu » 1 328 1 183
Fiskur til niðursuðu . 54 200 166
Fiskur i salt:
a) Venjnl. saltfiskur. 478 3 701 3 772
b) Venjul. tunnusalt.. » » 312
c) Til neyzlu innanl. 3 093 3 991 »
Síld: brædd, fryst, sölt. » 221 843 181 958
Samtals 12 476 461 314 383 121
Fiskaflinn 31. janúar 1945.
(Miðuð við slægðan flsk með haus.)
Jan. Jan.
1945, 1914,
1. Fiskur, isaður: smái. smái.
a. í útflutningsskip ........... 7 019 2 508
b. Afli fiskisk. útfl. af þeim .. 6 507 4 088
Samtals 13 556 6 596
2. Fiskur til frj'stingar .......... 2 792 2 670
3. Fiskur til niðursuðu ....... 538 51
4. Fiskur i salt: a) venjul. saltf,. 538_______»
Alls 17 004 9 317
ombil vikutíð, hefði allur vanlurinn geng-
ið forlis, ef hankelið á mantelinu hefði
skamfílast; og krúmmelsið á stammanum
á rórinu var ombil knekkað í húllinu, ef ég
hefði ekki gefið því misvisningu upp á
tímann, og þá kvað ég þessa vísu, og skrif-
aði hana upp hjá mér undir eins og ég var
kominn ofaní káhittið
Enkelblok i hankelhring
hefur dummor flamma,
knúst og brekkuð bekleðning
á borðets krúmma stamma.“
Bóndi varð forviða, og sagðist aldrei
bafa hugsað, að svo mikinn lærdóm þyrfti
lil þess að vera á jöktum.