Ægir - 01.02.1945, Qupperneq 68
90
Æ G I R
Utgeré og aflabrögð.
Vegna J)ess drátíar, sem orðið hefur á
á því, að Ægir kæmi út, þykir eigi ástæða
lil að birta hér yfirlit yfir úlgerð og afla-
hrögð í Sunnlendingafjórðungi, J)ar seni
iiarlega frásögn uin vertíðina í þeiin fjórð-
ungi kemur i maíblaðinu.
Vestfirðingafjórðungur.
Steingrímsfiörður. Tveir þiljaðir bátar
slunduðu veiðar frá Hólmavík fyrri hluta
marzmánaðar og fóru mest 14 róðra. Mesl-
ur afli í róðri var um 5000 kg. Síðast í
marz fóru fáeinir opnir vélbátar til fiskjar
og öfluðu fremur vel, eða mest um 1300 kg.
I apríl voru fiskveiðar almennt stund-
aðar, einkum eftir páska. Afli var yfirleitt
góður, 1100—2000 kg í róðri. Vélbáturinn
Guðmundur frá Hólmavík var á hákarla-
veiðum tæpan liálfan mánuð og aflaði
mjög vel. Fékk hann á Jjessum tima 140
hákarla. Bátur Jjessi fór auk hákarlaveið-
anna 10 róðra með línu í mánuðinum og afl-
aði mest í róðri um 5000 kg. Aflinn hefur
nær allur verið látinn í hraðfrystihúsin,
nema hvað lítils háttar var saltað á Drangs-
nesi í byrjun apríl.
Sléttiihreppur og Grunnavík. Allmargl
smábáta úr Aðalvík og Fljótum byrjuðu
veiðar þegar upp úr páskum. Bátar úr
Fljótum hafa aflað vel. í Aðalvík hefur
verið sæmilegur afli, mest um 500 kg í
róðri á tveggja manna för. Frá Látrum
ganga 5 vélbátar opnir. Einn vélbátur, 4
rúml., frá Látrum fór 18 sjóferðir í apríl
og aflaði mest uni 3000 kg í róðri. Einn
Jnúggja rúinl. bátur úr Grunnavík og annar
l'rá Sléttu byrjuðu veiðar síðasta í april.
Þessir hátar fóru með afla sinn til Bolunga-
víkur, en úr Aðalvík og Fljötum flutti bátur
frá ísafirði fiskinn þangað í fisktökuskip.
Súðavik. Þaðan reru 4 vélbátar (14—16
rúml.) í.marz. Farnir voru 17 róðrar. Afli
var góður, mestur um 10 Jms. kg 1 róðri.
í apríl var yfirleilt tregur afli, mest um
7000 kg í róðri. Mest voru farnir 18 róðrár
í mánuðinum. Aflinn var látinn í hrað-
frystihúsin í Súðavík og á Langeyri.
ísafjörður. í marz voru góðar gæftir og
voru mest farnir 18 róðrar. Gpðfiski var
lram um 20 J). m„ en úr því var nokkuð
tregara; undir mánaðamótin glæddist afl-
inn þó aftur. Mestur afli í sjóferð var um
14 500 kg (sumt með haus). Línutap var
allmikið hjá sumum bátunum, oft frá 10—
30 lóðir í róðri. Hugar og Birnirnir voru
að veiðum í Breiðafirði og við Snæfellsnes
og öfluðu all vel. Einn hátur stundaði
rækjuveiðar í marz og aflaði vel.
í apríl var tregfiski framan af mánuð-
inum, einkum á vetrarmiðum. Um miðjan
mánuðinn tóku landróðrarbátar að sækja
austur að Hornhjargi og fengu um tíma
all góðan afla á þeim slóðum eða allt upp í
8600 kg. Undir lok mánaðarins var þó orð-
inn þar tregur afli. Hugar og bátar Sam-
vinnufélagsins stunduðu veiðar í Breiða-
firði og við Snæfellsnes í apríl og lögðu
aflann í skip þar. Nokkrir opnir vélbátar
sóttu til veiða í Djúpið i þessum mánuði,
en öfluðu Htið framan af, 200—400 kg i
róðri. Síðustu dagana í apríl glæddist afl-
inn nokkuð. Mest af fiskinum var látið í
fisktökuskip og nolckuð í hraðfrystihús.
Hnifsdalur. Þar voru 5 bátar að veiðum
i marz. Mest voru farnir 18 róðrar. Afli var
sæmilegur, allt upp í 8500 kg í róðri.
í apríl var afli fremur tregur og lang-
sótt. Mestur afli í róðri var 5700 kg. Mest
voru farnar 17 sjóferðir. Mestur hluti afl-
ans var Iátinn i skip, en nokkuð í hrað-
frystihús.
Bolungavík. Óvenju góðar gæftir voru
þar i marz og voru farnar 23 sjóferðir. Afli
var ágætur og jafn. Mest fékkst í róðri
8000 kg m/h. (Bolungavíkurbátar eru
minni og leggja ekki eins margar lóðir og