Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1933, Blaðsíða 60
.330
Franivinclan og sagan.
IÐUNN
•depil sagnfræðinnar frá himni og niður á jörð, frá kon-
ungum til mannkyns, frá ófriði til siðmenningar. En þó
er enn ekki úr því skorið, hvort framförunum valcli at-
orka einstakra afburðamanna, afl vaxandi þekkingar,
uppgötvanir vísindamanna og margvíslegra völunda,
•erfðir hinna beztu kynþátta, hagstæðar ástæður til
framleiðslu og verzlunar, landfræðisleg rök eða enn
aðrar orsakir. En talið er, að Montesquieu geri fyrstur
manna verulega tilraun til þess að leita að þessum sér-
stöku ástæðum, er yllu framförum eða hnignun þjóð-
lífsins.
Montesquieu lagði mikla áherzlu á, að mjög litlu
máli skifti um einstaka menn. í sögunni, og að jafnvel
•einstakir atburðir, eins og t. d. úrslitaorustur, ættu til-
tölulega lítinn þátt í að ákveða mikilleik ]ijóðanna.
Hann hélt því fram, að mikilmenni og stórfeldir við-
burðir væru einungis tákn og afleiðingar hæglátra og
langvarandi strauma, sem oft ættu upptök sin þar, er
væri svo ópersónulegar staðreyndir eins og landslag og
lofthiti. Vitaskuld benti hann á margvíslegar aðrar or-
sakir en nú voru nefndar, en að öllu samanlögðu talcli
hann hina landfrœdislefju skýringu sögunnar vfirgrips-
mesta.
Fyrst og fremst hélt hann því fram, aö lundarfar
þjóðanna, sem ætti svo mikinn þátt í forlögum þeirra,
væri að langmestu leyti komið undir áhrifum loftslags-
ins. Öllum ber saman um, að menn séu starfsamari og
örari til vinnu í köldum löndum en heitum. En þessi
alkunnu sannindi verða æði mikilsverð, ef hér er jafn-
framt að leita skýringar á mismuninum á trúarbrögðum
og lífsskoðunum þjóðanna. Indverjar búa í hitabelti, og
í Jieirra augum er friður og tilveruleysi hin æðsta hug-
.sjón. Hugmyndin um helviti er runnin frá þeim þjóðum.