Ægir

Volume

Ægir - 01.03.1980, Page 17

Ægir - 01.03.1980, Page 17
Frá aflaverðmæti, sem selt er erlendis dragast aukalega 1%, áður en aflahlutir eru reiknaðir, Þ-e- á bátum og minni togurum 16% Stofnfjársj., '3% vegna kostnaðar og 1% olíugjald eða samtals 30%. Þann 2. marz voru einnig samþykkt lög nr. 3 1979, sem eru svohljóðandi: “l.gr. gr. orðist svo: Utllutningsgjald af sjávarafurðum samkvæmt lögum þessum skal vera 5% af f.o.b. verð- mæti útflutnings. 2. gr. '• mgr. 4. gr. orðist svo: Ríkissjóður annast innheimtu útflutnings- Sjalds skv. 2. og 3. gr. og skiptast tekjur uf því sem hér segir: Eftir Fyrir brevt- hreyt- injgu: ingu: h Til Aflatryggingasjóðs: a) Almenn deild ................... 19,5% 22,0% b) Áhafnadeild .................... 31,0% 26.0% -• Til greiðslu á vátryggingarkostnaði fiskiskipa, samkvæmt reglum. sem sjávarútvegsráðuneytið setur ...... 25,0% 27.0% T Til Fiskveiðasjóðs íslands og Fiski- málasjóðs: a) Lánastarfsemi .................. 20.0% 21.0% b) Styrkveitingar Fiskimálasjóðs ... 1,0% 0,9% T Til sjávarrannsókna og Framleiðslu- eftirlits sjávarafurða, skv. reglum, sem sjávarútvegsráðuneytið setur .. 2.5% 2.3% Til Landssambands ísl. útvegsmanna 0.5% 0.4% b- Til samtaka sjómanna skv. reglum. sem sjávarútvegsráðuneytið setur . 0,5% 0.4% Samtals 100.0% 100.0% Lög þessi öðlast gildi 1. marz 1979 og skulu a^væði þeirra taka til útflutnings sjávaraf- Urða, sem framleiddar eru eftir lok febrúar- mánaðar 1979. Akvæði laga þessara gilda til ársloka 1979. ^ra I. jan. 1980 gilda eldri ákvæði laga nr. 5/1976.“ ^amkvæmt þessum lögum lækka útflutnings- klöld úr 6% í 5% og ný skipting er tekin upp milli sJ°ða sjávarútvegsins. ^egar skip selja erlendis reiknast 75% af útflutn- ingsgjaldinu, þ.e. 75% af 5% = 3,75% í stað 4,5%, eins og áður var. Þessi lækkun hefur ekki áhrif á þann frádrátt, sem reiknaður er frá óskiptu. Ath. Framangreind sundurliðun á útflutnings- gjöldum sýnir skiptingu fyrir breytingu (aftari dálkurinn) og eftir breytingu úr 6% í 5% (fyrri dálkurinn). Fiskverðsákvörðun 1. júní 1979 Þessari fiskverðsákvörðun var eins og fyrr á árinu vísað til yfirnefndar ráðsins. Verðlagningin dróst nokkuð fram eftir júnímánuði, vegna óvissu um hækkun á olíu, en ljóst var að veruleg hækkun myndi verða í júnímánuði. Ennfremur var ljóst með tilliti til þeirra miklu takmarkana, sem settar voru á þorskveiðar togara- flotans sl. sumar og haust að grípa þyrfti til einhverra þeirra ráðstafana, sem gerðu veiðar á karfa og ufsa mögulegar. Segja má að framan- greind atriði hafi fengið viðunandi úrlausn þegar samkomulag náðist 9. júní í yfirnefndinni um 13,5% hækkun fiskverðs. í tengslum við ákvörðun fiskverðs voru gefin út svohljóðandi bráðabirgðalög nr. 69/1979: „1- gr. 1. gr. laga nr. 4 2. marz 1979 orðist svo: Þegar fiskiskip selur afla í innlendri höfn eða afhendir afla sinn til vinnslu án þess að sala fari fram, skal fiskkaupandi eða fiskmót- takandi greiða útgerðarmanni eða útgerðar- fyrirtæki olíugjald er nemi 7% miðað við fiskverð eins og það er ákveðið af Verðlags- ráði sjávarútvegsins. Hið sama gildir, þegar fiskiskip selur afla sinn öðru skipi til löndunar í erlendri höfn. Olíugjald þetta kemur ekki til hlutaskipta eða aflaverðlauna. 2. gr. Þrátt fyrir ákvæði laga um útflutningsgjald nr. 5 13. febrúar 1976, sbr. lög nr. 3 2. marz 1979, skal heimilt að verja 500 milljónum króna af tekjum Tryggingasjóðs fiskiskipa og 700 milljónum króna af tekjum Aflatrygg- ingasjóðs af útflutningsgjaldi til þess að bæta upp verð á karfa og ufsa á tímabilinu 15. maí 1979 til 31. desember 1979. Fjárhæð þessarar uppbótar á hvert kílógramm af framan greindum tegundum skal ákveðin innan fyrr greindra marka af Verðlagsráði sjávarútvegs- ins með fiskverðsákvörðun hverju sinni. ÆGIR — 137

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.