Ægir

Årgang

Ægir - 01.03.1980, Side 22

Ægir - 01.03.1980, Side 22
loðnuútgerð og vinnslu gífurlegt fé því í ljós er komið, svo sem áður segir að eingöngu verður unnið á þessari vertið óverulegt magn af þessum afurðum. Ákvörðun loðnuverðs. Þrátt fyrir þá óvissu er ríkti varðandi sölu á frystri loðnu og loðnuhrognum, var við verð- ákvörðun á bræðsluloðnu í jan. sl. tekið mið af samsvarandi framleiðslu þessara afurða ogávetrar- vertíð 1979 og tekjuhlið útgerðarinnar miðuð við þá forsendu. Oddamaður yfirnefndar Verðlagsráðsins lagði fram eftirfarandi sundurliðun á afla loðnu- skipanna m.v. 275 þús. tonna aflamark. 1. Heildarafli 1.1 f bræðslu 1.2 í frystingu 1.3 Hrogn 275.000 tonn 262.000 tonn 10.000 tonn 3.000 tonn Ennfremur var reiknað út m.v. framangreindar forsendur um afla, tekjuþörf útgerðarinnar pr. kg. hráefnis. Útkoman varð eftirfarandi: 2. Tekjuþörf loðnuútgerðar (skiptaverð). 2.1 Bræðsla 262.000x20.10 kr./kg = 5.266 m.kr. 2.2 Frysting 10.000x72.0 ” ” = 720 ” ” 2.3 Hrogn 3.000x278.3 ” ” = 835 ” ” Samtals tekjuþörf (skiptaverð) 6.821 m.kr. Þetta var sú áætlun sem Þjóðhagsstofnun lagði fram við verðákvörðunina. Sú áætlun er L.Í.Ú. lagði fram við verðlagninguna sýndi hins vegar jafn- vægisskiptaverð á bræðsluloðnu 24.20 kr./kg. Þegar verðið var ákveðið af oddamanni og fulltrúum verksmiðjueigenda varð niðurstaðan hins vegar sú að verð pr. kg. var ákveðið 16.20 kr. (8% fita, 16% þurrefni), þannig að 3.90 kr./kg. vantaði upp á það verð sem Þjóðhagsstofn- un mat sem jafnvægisverð en 8 kr./kg. á verðið m.v. útreikninga L.Í.Ú. M.v. framangreint verð og þau verð sem ákveðin hafa verið á loðnu til frystingar og hrognum má ætla að tekjur útgerðarinnar verði eftirfarandi m.v. sama aflamagn og í fyrri áætlun. 3. Tekjur útgerðar m.v. ákveðin verð 3.1 Bræðsla 272.300x16.20 kr./kg 3.2 Frysting 2.000 tonn (?)x83 kr./kg 3.3 Hrogn 700 tonn (?)xl20 kr./kg Samtals skiptaverö =4.41 I m.kr. = 116 m.kr. = 84 m.kr. 4.661 m.kr. Rétt er að taka fram að samningar hafa tekist um sölu á 6.000 t. af frystri loðnu, en stærð loðnunnar bendir til þess að lítið verði fryst. Skv. framangreindu vaniar loðnuútgerðina ca• 2.200 m.kr. skiptaverðmœti til þess að endar nai saman m.v. 275.000 tonna afia. Ljóst er að aflinn mun fara eitthvað fram yfir 300.000 tonna markið en hráefnisverð loðnu til bræðslu í lok vertíðar er það lítið að ljóst er að verulegur halli verður á út- gerðinni á þessari vertíð. Pétur Pétursson: Þorskalýsisframleiðslan 1979 Framleiðsla þorskalýs' is varð á árinu 1979 sarn- tals 3.287 tonn. Er það aukning frá árinu áður um 561 tonn eða 20%- Hefur nú loks snúist við sú þróun margra undan- farinna ára, að magn þorskalýsisframleiðsl- unnar hefur stöðugl minnkað. Er þessi fram- leiðsla nokkuð jöfn þvl’ sem var árið 1976. Þessi aukning þorskalýsisframleiðslunnar er töluvert meiri en aukning þorskaflans í heild og verður því að draga þá ályktun að heldur sé að draga úr þeirri óheillavænlegu þróun undanfarinna ára að hirða ekki til nýtingar þorskalifrina. Ræðut hér eflaust miklu um að verðhækkun milli áranna 1978 og 1979 varð meiri en nokkru sinni fyrr. Verð það sem greitt var fyrir vertíðarlifur við Faxafl°a var kr. 44.- 1978 en kr. 76,- pr. kg. 1979 og er það nærri 73% hækkun. Þessa verðhækkun má fyrst og fremst rekja til bættrar samkeppnisaðstöðu okkar íslendinga 3 meðalalýsismörkuðum heimsins og þess að aukið hlutfall heildarframleiðslunnar fer nú á markað sem fullunnin vara. Standa vonir til þess að su þróun haldi áfram 1980, ogjafnvel að meðaukinn1 samvinnu tveggja stærstu lýsisframleiðenda lands- ins muni meðalalýsisútflutningurinn aukast enn mjög verulega á yfirstandandi ári. Er hér um að ræða samvinnu sem vonir standa til að muni leiða til varanlega aukins verðmætis hinnar íslensku þorskalýsisframleiðslu. 142 — ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.