Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1980, Síða 50

Ægir - 01.03.1980, Síða 50
FISKVERÐ Rækja Tilkynning nr. 2/1980. Verðlagsráð sjávarútvegsins hefur ákveðið eftir- farandi lágmarksverð á rækju frá 1. janúar til 31. maí 1980: Rækja, óskelflett í vinnsluhæfu ástandi: a) 160 stk. og færri í kg, hvert kg . kr. 441.00 b) 161 til 180 stk. í kg, hvert kg ... kr. 381.00 c) 181 til 200 stk. í kg, hvert kg ... kr. 353.00 d) 201 til 220 stk. í kg, hvert kg ... kr. 316.00 e) 221 til 240 stk. í kg, hvert kg ... kr. 276.00 0 241 til 260 skt. í kg, hvert kg ... kr. 250.00 g) 261 til 280 stk. í kg, hvert kg ... kr. 228.00 h) 281 til 300 stk. í kg, hvert kg ... kr. 211.00 i) 301 til 340 stk. í kg, hvert kg ... kr. 193.00 Verðið er uppsegjanlegt frá og með 1. mars með viku fyrirvara. Verðflokkun byggist á talningu Framleiðslueftir- lits sjávarafurða eða trúnaðarmanns, sem tilnefndur er sameiginlega af kaupanda og seljanda. Verðið er miðað við að seljandi skili rækju á flutningstæki við hlið veiðiskips. Reykjavík, 30. janúar 1980. Verðlagsráð sjávarútvegsins. Hörpudiskur Tilkynning nr. 3/1980. Verðlagsráð sjávarútvegsins hefur ákveðið eftir- farandi lágmarksverð á hörpudiski frá 1. janúar til 31. maí 1980: Hörpudiskur í vinnsluhæfu ástandi: a) 7 cm á hæð og yfir, hvert kg ... kr. 95.00 b) 6 cm að 7 cm á hæð, hvert kg .. kr. 78.00 Verðið er uppsegjanlegt frá og með 1. mars með viku fyrirvara. Verðið er miðað við að seljendur skili hörpudiski á flutningstæki við hlið veiðiskips og skal hörpu- diskurinn veginn á bílvog af löggiltum vigtarmanni á vinnslustað og þess gætt, að sjór fylgi ekki með. Verðið miðast við gæða- og stærðarmat Fram- leiðslueftirlits sjávarafurða og fari gæða- og stærð- arflokkun fram á vinnslustað. Reykjavík, 30. janúar 1980. Verðlagsráð sjávarútvegsins. Loðna tíl bræðslu Tilkynning nr. 4/1980. Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur ákveðið eftirfarandi lágmarksverð á loðnu veiddri til bræðslu á vetrarloðnuvertíð 1980. Hvert kg ................................. kr. 16.20 Verðið er miðað við 8% fituinnihald og 16% fitu- frítt þurrefni. Verðið breytist um kr. 1.30 til hækk- unar eða lækkunar fyrir hvert 1%, sem fituinnihald breytist frá viðmiðun og hlutfallslega fyrir hvert 0.1%. Fitufrádráttur reiknast þó ekki, þegar fitu- innihald fer niður fyrir 3%. Verðið breytist um kr. 1.60 til hækkunar eða lækkunar fyrir hvert 1 %, sem þurrefnismagn breytist frá viðmiðun og hlutfalls- lega fyrir hvert 0.1%. Ennfremur greiði kaupendur 4 aura fyrir hvert kg til loðnunefndar. Auk verðsins, sem að framan greinir skal lögum samkvæmt greiða 10% gjald til stofnfjársjóðs fiskiskipa og 5% olíu- gjald, sem ekki kemur til skipta. Verksmiðjunum ber þannig á grundvelli þessarar verðákvörðunar að greiða til veiðiskipa eftirfarandi heildarverð: Heildarverð til útgerðar að meðtöldu olíu- gjaldi og stofn- fjársjóðsgjaldi kr. pr. kg 1. Fyrir hvert kgaf loðnu miðað við 8% fituinnihald og 16% fitufrítt þurrefni 18.63 2. Viðbót eða frádráttur fyrir frávik um 1% að fituinnihaldi frá viðmiðun sbr. hér að framan ............... 1.50 3. Viðbót eða frádráttur fyrir frávik um 1% að þurrefnisinnihaldi frá viðmið- un sbr. hér að framan ............ 1-84 Fituinnihald og fitufrítt þurrefnismagn hvers loðnufarms skal ákveðið af Rannsóknastofnun fisk- iðnaðarins eftir sýnum, sem tekin skulu sameigin- lega af fulltrúa veiðiskips og fulltrúa verksmiðju. eftir nánari fyrirmælum Rannsóknastofnunar fisk- iðnaðarins. Sýni skulu innsigluð af fulltrúa veiði- skips með innsigli viðkomandi skips. Verðið miðast við loðnuna komna í löndunartæki verksmiðju. Lágmarksverð á úrgangsloðnu til bræðslu fra frystihúsum skal vera kr. 1.30 lægra fyrir hvert kg en að ofan greinir og ákvarðast á sama hátt fyrir hvern farm samkvæmt teknum sýnum úr veiðiskipu Verðið er uppsegjanlegt frá og með 1. mars með viku fyrirvara. Reykjavík, 1. febrúar 1980. Verðlagsráð sjávarútvegsins- 170 — ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.