Ægir

Årgang

Ægir - 01.03.1980, Side 64

Ægir - 01.03.1980, Side 64
Sendiorka er 300 W og hægt er að velja um þrjá mismunandi senditíma; 0.6, 1.2 og 1.8 millisek. Mælirinn er gerður fyrir 8“ þurrpappír og pappírs- hraði er breytilegur frá 2.5 - 15 mm/mín. Mál tækis eru 498 x 402 x 181 mm (hæð x breidd x dýpt). Mælir- inn er gerður fyrir 12, 24 eða 32 V jafnstraum og 110 eða 220 V riðstraum, og aflþörf er 80 W. Sem viðbótarbúnað við mælinn er mögulegt að fá botnstækkun, Memo-Graph EM-1, sem búin er ljóstöluaflestri. Stækkun, bæði við botn og mið- sjávar, er möguleg í fimm þrepum, sem fyrir 8“ skrifara eru 7.5, 15, 30, 60 og 120 m, og er stækkun óháð dýptarsviði mælis. Stækkun nær yfir neðri helming af breidd pappírs fyrir 8“ skrifara. Einnig er hægt að fá sem viðbótarbúnað fisksja (myndskjá), sem nefnist Memo-Scope ES 5, svo og dýpisteljara, ED-202. Fiskskjá er með 5“ myndskjá, stöðuga mynd og er með innbyggðri stækkun. Umboð fyrir Furuno Electric Co. Ltd. hér á landi hefur Skiparadio hf., Reykjavík. Samkvæmt upp- lýsingum umboðsins er verð á Furuno FE-813-BF með 28 KHz botnspegli d.kr. 13.473 f.o.b., eða miðað við gengi í marzbyrjun um 994 þús. ísl. kr. Samsvarandi verð á botnstækkun EM-I er 11.340 d.kr. f.o.b. (837 þús. ísl. kr.) og á fiskskjá ES-5 13.020 d.kr. f.o.b. (961 þús. ísl. kr.). Micrologic ML loranmóttakarar Sjálfvirkir loran C móttakarar hafa á undan- förnum örfáum árum skipað sér sess, sem eitt af þeim rafeindatækjum sem ómissandi þykja í íslensk- um fiskiskipum. Tæki þessi hafa verið nokkuð dýr fyrir minni fiskiskipin, en nú á síðasta ári hafa komið fram lorantæki sem eru mun ódýrari en þau sem áður hefur verið boðið upp á. Tæki þessi eru frá Micrologic, gerðir ML 120 og ML 220. Munur milli þessara tveggja tækja liggur í því, að ML 120 er með einni aflesturseiningu, sem sýnir tvær staðarlínur til skiptis, en ML 220 er með tvær aflesturseiningar og sýnir báðar lín- urnar stöðugt. Til viðbótar þessum tækjum er unnt að fá stýrieiningu, en hún gerir kleift að lesa stað- setningu ákvörðunarstaðar inn í tækið, og fá síðan út frávik frá stórbaugsstefnu til ákvörðunarstaðar og vegalengdina til ákvörðunarstaðarins. ML 220 tækið getur þá einnig gefið tíman sem tekur að sigla þessa vegalengd, miðað við óbreyttan hraða skips. Tækin eru mjög fyrirferðarlítil, ML 120 gerðin 30.2 x 8.1 x 31.9 cm og vegur 4.6 kg og ML 220 gerðin 30.5 x 14.2 x 30.0 cm og vegur 5.7 kg. Þá býður Micrologiceinnigstærralorantæki, gerð ML 320 sem hefur mjög svipað notkunarsvið og Micro- logic ML 1000, sem er eldri gerð og lýst var í 4 tbl. Ægis 1978. Micrologic ML 120 Micrologic ML 220 Umboð fyrir Micrologic hér á landi hefur Sónar hf. í Keflavík. Samkvæmt upplýsingum þess erverð á ML 120 tæp 900 þús. miðað við gengi í marz- byrjun. ML 220 kostar tæp 1200þús.,ogstýrieining 165 þús. ML 320 tækið kostar aftur á móti ~ milljónir. 184 — ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.