Tímarit lögfræðinga - 01.06.1965, Blaðsíða 27
þús. til M. sem var 3 ára. Var við ákvörðun þessara
fjárhæða tekið tillit til aldurs barnanna en sérstakt til-
lit tekið til þess, að algengt væri, að börn nytu fjárhags-
stuðnings frá foreldrum, einkum við nám. Loks var höfð-
uð meðalgöngusök í málinu tvö börn hins látna manns er
getin voru utan hjónabands. Börn þessi voru 4 og 5 ára.
Var krafizt lífeyris fyrir bæði börnin, en fallið var
frá þeim kröfum síðar, þar sem í ljós kom að börnin
fengu fullnægjandi greiðslur vegna hinnar frjálsu trygg-
ingar, sem stefndi hafði keypt. Samkvæmt kröfum meðal-
göngustefnda voru börnunum hins vegar dæmdar bætur
vegna röskunar á stöðu og högum kr. 10 þús. til hvors.
Var þá tekið tillit til þeirra atriða, sem greinir hér að
ofan, en það hins vegar sérstaklega haft í huga að ekki
virtist hér vera um að ræða náið samband milli föður
og barna.
Dómur Bþ. B. 16. júní 1958.
Skaðabætur utan samninga. — Vinnuslys. — Sýkna
Á starfaði á bifreiðaverkstæði ölgerðar (ö) og hafði
starfað þar að staðaldri í 2—3 ár, en hafði ekki réttindi
sem bifvélavirki. S hafði á hendi stjórn bifreiðaverkstæð-
isins, en hafði þó ekki réttindi sem bifvélavirki. I febrúar-
mánuði 1960 unnu þeir S og Á á verkstæðinu við bifreið,
eign ö. Unnu þeir við að tengja vél bifreiðarinnar við
skiptihjólakassa hennar. Við verkið lá S undir bifreið-
inni, en Á stóð fyrir framan hana og sneri vélinni með
sveif. Er Á reisti sig upp, rak hann hægra augað í boga-
tein þann, sem tengir saman kæli og hús bifreiðarinnar.
Aurhlífar bifreiðarinnar, vélarhlíf og kælir höfðu verið
tekin í burtu og var því bogateinninn laus að framan og
óvarinn. Hlaut Á slík meiðsl að nema varð augað brott.
Höfðaði hann síðan mál á hendur ö til heimtu skaða-
bóta. Ekki var fallizt á þá málsástæðu A, að rekstur bif-
reiðaverkstæðis væri hættulegur atvinnurekstur. Varð
bótakrafa Á því ekki á því byggð og ekki heldur á því,
Tímarit löf/fræiiintja
89