Tímarit lögfræðinga - 01.06.1965, Blaðsíða 59
ber, skipaður borgarfógeti í Reykjavík frá 1. desember
að telja.
Einar Ingimundarson, bæjarfógeti í Siglufjarðarkaup-
stað, var, hinn 6. nóvember, skipaður bæjarfógeti í Hafn-
arfjarðarkaupstað og sýslumaður í Gullbringu- og Kjós-
arsýslu frá 1. jan. 1966 að telja.
Elías J. Elíasson, deildarstjóri í dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu var, hinn 22. desember skipaður bæjarfó-
geti í Siglufjarðarkaupstað frá 1. marz 1966 að telja.
NÝIR HÆSTARÉTTARLÖGMENN 1966. Frh.
8/9. Vilhjálmur Þórhallsson. Að loknu embættisprófi
hefur Viihjálmur stundað málflutning og önnur lög-
fræðistörf í Keflavík og um Suðurnes. Hann hefur skrif-
stofu í Keflavík.
9/11. Björn Hermannsson. Stundaði um sinn lögfræði-
störf á Akureyri. Árið 1957 gerðist hann fulltrúi í fjár-
málaráðuneytinu og hefur starfað þar siðan. Er nú deild-
arstjóri þar.
22/11. Björn Sveinbjörnsson. Var lengi fulltrúi bæjar-
fógetans í Hafnarfirði og sýslumannsins í Gullbringu-
og Kjósarsýslu. Er Guðmundur í. Guðmundsson tók við
embætti utanríkisráðherra var Björn settur bæjarfógeti
og sýslumaður í Hafnarfirði þar til hann sagði upp
stöðu sinni og gerðist lögmaður. Hann rekur skrifstofu
í Reykjavík.
22/11. Jón Finnsson. Hefur lengi verið fuiltrúi bæjar-
fógetans í Hafnarfirði og sýslumannsins í Gullbringu-
og Kjósarsýslu, og m. a. annazt lögreglustjórn á Kefla-
víkurflugvelli í umboði sýslumanns 1951—1954. Hann
sagði upp starfi sínu á árinu 1965 og gerðist lögmaður.
Hann rekur skrifstofu hér i Reykjavík.
27/11. Jón Hallvarðsson. Var nokkur ár sýslumaður i
Snæfellsness- og Hnappadalssýslu en hefur síðan 1940
stundað lögfræðistörf í Reykjavík. Jafnframt hefur
hann starfað hjá Rikisskattanefnd.
Tímarit lögfræðinga
121