Tímarit lögfræðinga - 01.06.1965, Blaðsíða 42
aði greiðlega. Eftirtaldir fundarmenn tóku þátt í um-
ræðunum: Dr. jur. Gunnlaugur Þórðarson, Björn Frið-
finnsson, fulltrúi yfirborgardómara, Gunnar Jónsson,
stud. jur., Þór borgardómari Vilhjálmsson, Jón Þor-
móðsson, stud. jur., Magnús Thoroddsen, fulltrúi vfir-
borgardómara og próf. Ármann Snævarr, sem hóf um-
ræðurnar með stuttu yfirliti yfir meginatriði fundar-
efnisins. Umræður fóru fram á ensku.
Formannsskipti og aðrar breytingar á stjórn.
Á aðalfundi félagsins 28. des. 1965 baðst próf. Ár-
mann Snævarr undan endurkjöri sem formaður. Einnig
gat liann þess, að þeir Benedikt Sigurjónsson, hrl. og
Einar Arnalds, hrd.liefðu óskað eftir að hverfa úr stjórn-
inni. Þorvaldur Garðar Kristjánsson, alþingismaður var
(eftir tillögu fráfarandi stjórnar) kosinn fórmaður fé-
lagsins og Þórður yfirsakadómari Björnsson varafor-
maður. Eftirtaldir menn voru kosnir meðstjórnendur:
Árni Gunnlaugsson, hrl., Arnljótur Björnsson, hdl., Ein-
ar Bjarnason, ríki'sendui-skoðandi, Guðmundur Jónsson,
borgardómari og Theodór B. Líndal, prófessor.
Prófessor Ármanni Snævarr, liáskólarektor, voru
þökkuð afburðagóð störf í þágu félagsíns, en hann hef-
ur gegnt formennsku frá upphafi. Var próf. Ármann
einn helzti hvatamaður að stofnun félagsins árið 1958
og er vafasamt að nokkuð hefði orðið úr félagsstofnun
þá, ef ekki hefði komið til frumkvæði hans.
Þeir Jóhannes Helgason, háskólaritari, Jón Finnsson,
dómarafulltrúi og Ólafur W. Stefánsson, stjórnarráðs-
fulltrúi voru kosnir aðalfulltrúar félagsins í fulltrúaráð
Bandalags háskólamanna.
Arnljótur Björnsson.
104
Timarit lögfræðinga