Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1965, Page 18

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1965, Page 18
gætu orðið til þess að siðari meðferð máls yrði ómerkt, ef til áfrýjunar aðalmálsins kæmi. Það kom hins vegar á daginn að kæruheimildir þóttu ofnotaðar og þá einkum í því skyni að tefja mál sbr. t. d. Hrd. XXVI—97 og 99 o. fl. Olli þetta ofl drætti á málum, tímatöf fyrir dómendur og aðila og óþarfa kostnaði. Því var það, að með hrl. 1962 voru kæru- heimildir mjög þrengdar sbr. 21. og 3. 1. 61. gr. laganna. I athugasemdum við frv. að hrl. 1962, er visað til frum- varps að lögum um meðferð einkamála, sem oftar en einu sinni (1955 og 1961) hefur verið lagt fyrir Alþingi. Frv. þetta liefur að vísu ekki orðið að lögum, en ofan- greind tilvísun ber þó með sér hver tilgangur 21. og 3. 1. 61. gr. hrl. er. Það sem hér skiptir helzt máli úr greinargerðinni eru athugasemdir við XII. kafla frv., en þar segir á þessa leið: „Meðan á máli stendur fyrir héraðsdómi, ber það oft við, að upp rísa ágreinings- eða vafaefni, sem dómari verður að skera úr með sérstökum úrskurði. Rís þá sú spurning, bvort heimila eigi í lögum að skjóta slíkum úrskurði sérstaklega til æðra dóms. Með þessari með- ferð mælir það, að eigi þarf að taka málið upp aftur i heild sinni, ef úrskurðinum er brej'tt í æðra dómi. Hins vegar mælir það á móti þessari meðferð, að aðili eða umboðsmaður aðilja, er tefja vill mál og vefja, getui, ef sérstök kæra á einstökum úrskurðum er heimil, kraf- izt úrskurðar um eitt og annað og kært úrskurðina jafnharðan til Hæstaréttar og aflað sér á þann hátt ólögmætra fresta og tafið málið. Árið 1690 var gefin út tilskipun, sem bannaði sérstaka áfrýjun einstakra úrskurða, sem kveðnir voru upp við málsmeðferð. Var sú tilskipun á þeim rökum reist, að sumir málfærslu- menn og einkum þeir, sem tekið liafa að sér röng mál til flutnings, vilji eigi hlíta úi-skurðum dómaranna, lieldur beiðast afrits af úrskurðunum til þess að draga tímann og þreyta mótpartinn og láta stefna úrskurð- 80 Títnarit lögfræðinga

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.