Tímarit lögfræðinga - 01.10.1975, Blaðsíða 5
t
JÓHANNES ELÍASSON
Hinn 18. mars s.l. a5 morgni barst okkur
samstarfsmönnum og vinum Jóhannesar Elías-
sonar, bankastjóra, sú harmafregn, að hann
hefði að kvöldi hins 17. mars orðið bráðkvadd-
ur á Landspítalanum.
Okkur var að vísu Ijóst, að hann gekk ekki
heill til skógar, en að dauða hans bæri svo
skjótt að garði grunaði okkur ekki, enda hafði
hann setið bankastjórafund þennan sama dag,
en tjáð okkur, að hann myndi lítið verða við
næstu daga vegna læknisrannsóknar.
Jóhannes Elíasson var fæddur að Hrauni f
Öxnadal þann 19. maí 1920, sonur hjónanna Elí-
asar Tómassonar, fyrrv. bankagjaldkera, og
konu hans Róslínar Berghildar Jóhannesdótt-
ur. Hann var því aðeins rúmlega 54 ára, er hann
féll frá með svo sviplegum hætti.
Jóhannes brautskráðist frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1941 og hafði
þá verið skipaður Inspector Scolae, en til þess veljast aðeins traustir, vin-
sælir og mælskir menn.
Lagaprófi lauk hann árið 1947 með góðri einkunn.
Að lagaprófi loknu gerðist hann fulltrúi í Menntamálaráðuneytinu. Hann
stjórnaði einnig um skeið, með leyfi þess, umfangsmiklu útgerðarfyrirtæki.
Hann varð héraðsdómslögmaður árið 1948, hæstaréttarlögmaður 1956 og
stundaði um skeið málflutningsstörf sjálfstætt.
Vegna hæfileika Jóhannesar hlóðust snemma á hann mörg trúnaðarstörf.
Hann var ráðinn bankastjóri í Útvegsbanka islands árið 1957 og gegndi
því starfi til æviloka.
Svo að eitthvað sé talið af öðrum trúnaðarstörfum hans skal hér það helsta
rakið: Hann var tvívegis fulltrúi islands á þingum Sameinuðu þjóðanna, enda
varð hann síðar frumkvöðull stofnunar Félags Sameinuðu þjóðanna á is-
landi og fyrsti framkvæmdastjóri þess. Hann var svo formaður félagsstjórnar
frá 1971 til dauðadags. Jóhannes sat nokkrum sinnum fyrir Islands hönd árs-
51