Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1975, Side 20

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1975, Side 20
upp mildari og sveigjanlegri refsilöggjöf og dregið úr harðneskju þeirri og auðmýkingu, sem fylgdi refsivist. Jafnframt voru þá lög- fest sum þeirra nýju úrræða, sem getið var hér að framan. Sum voru hugsuð sem uppeldis- og læknisúrræði, svo sem unglingaverndarúr- ræði barnaverndarlaga, hælisvistun drykkjusjúkra, skilorðsbundnir dómar. önnur voru fremur öryggisúrræði, svo sem öryggisgæzla og afkynjun, eða hvort tvéggja eins og ótímabundnar refsingar o.fl. Nú var það nánast orðið meginmarkmið viðurlaganna að hafa áhrif á dómfelldan sjálfan, bæði til varnaðar, betrunar og endurhæfingar. Einnig gætti þess sjónarmiðs, að veita þyrfti samborgurunum vernd og viðhalda lögbundnu þjóðskipulagi. Algeng úrræði af þessu tagi voru betrunarstofnanir fyrir unglinga og hæli fyrir drykkjusjúka brotamenn. Úrræðin voru ekki refsing formlega séð, þar sem um þau fór ekki eftir þeim reglum, sem um refsingar gilda, svo sem um ákvörðun refsitíma, náðun, fyrningu, sakhæfi o.fl. Hugsunin var sú, að meðferð vistmanna færi sem næst því, að um meðferð sjúklinga á sjúkrahúsi væri að ræða. Gert var þá auðvitað ráð fyrir, að vistmenn nytu ýmiss konar þjónustu, sem ekki var þá almennt tiltæk í fang- elsum, menntunaraðstöðu, sálfræði- og læknisþj ónustu og ráðgjafar- þjónustu, svo að nokkuð sé nefnt. IV. Endurmat á meðferðarstefnunni. Sérfræðileg meðhöndlun brotamanna gat bæði farið fram í refsi- vist og í annars konar vistun, sem var þá aðallega ætluð sérstökum hópum brotamanna, svo sem áður er nefnt. Þessir hópar voru eink- um ungmenni, sálsjúkir eða geðveilir brotamenn, ofdrykkjumenn og síbrotamenn. Seint á l9. öld var farið að beita ótímabundnum refs- ingum í Bandaríkjunum og víðar. Fljótlega varð þó ljóst, að með því væri of langt gengið, og var þá víðast gripið til hálftímabundinna refsinga. Er Danir endurskoðuðu hegningarlög sín 1930, var þar sett ákvæði eftir enskri fyrirmynd um unglingafangelsi. Lágmarksvistun- artími var 1 ár, en gat orðið allt að 3 eða 4 árum eftir nánari ákvörðun fangelsisyfirvalda. En jafnvel í þessari mynd sættu refsidómarnir harðri gagnrýni. Þess ber að geta hér, að íslendingar hafa aldrei lögfest ákvæði um hálftímabundna eða ótímabundna refsidóma, þótt til séu annars kon- ar viðurlög, sem eru með því marki brennd. Ókostirnir við dóma af þessu tagi eru einkum þessir: a) Óvissan um dvalartíma hefur slæm andleg áhrif á fanga og brýt- ur smám saman niður sálarþrek þeirra. 66

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.