Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1975, Qupperneq 24

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1975, Qupperneq 24
ótímabundna refsidóma. Þar er aftur á móti ákvæði um ótímabundnar öryggisráðstafanir gegn síbrotamönnum, sbr. 67. gr. alm. hgl. Sam- bærilegt ákvæði hefur ekki gefizt vel í nágrannalöndunum og hefur nú víða verið endurskoðað, t.d. í Danmörku. Þar verður slíkum ráð- stöfunum nú aðeins beitt í tilefni tiltekinna alvarlegra afbrota og þegar jafnframt þykir stafa yfirvofandi hætta af hinum brotlega fyrir líf og limi eða frelsi annarra. Ákvæðinu hefur ekki verið beitt hér á landi, en það hefur ekki sætt endurskoðun enn sem komið er. Annað ákvæði er í íslenzkum lögum um ótímabundna vistun, þ.e. ör- yggisgæzla, sbr. 62. gr. alm. hgl. Þar hagar öðruvísi til en um örygg- isráðstafanir þær, er áður var lýst. Hér eru það brotamenn, sem geð- veikir eru eða fávitar og því taldir ósakhæfir, eða haldnir öðrum and- legum annmörkum í þeim mæli, að refsing þyki ekki bera árangur. Ætíð er það þá skilyrði hælisvistunar, að hún þyki nauðsynleg vegna réttaröryggis. öryggisgæzla er sjaldan dæmd, og í þeim tilvikum hef- ur dómþolum ekki verið haldið lengur í gæzlu en óhjákvæmilegt hef- ur þótt vegna yfirvofandi háska. Eru aðeins örfá dæmi um langa vist- un af þessu tagi hér á landi. Loks er heimild til hálftímabundinnar hælisvistunar manna, sem framið hafa brot undir áhrifum áfengis og geta ekki haft hemil á drykkjufýsn sinni, sbr. 65. gr. alm. hgl. Skal dómur hljóða um dvöl á hæli allt að 18 mánuðum, eða ef ítrekun á sér stað, allt að 3 árum. Er mér aðeins kunnugt um einn dóm skv. þessari heimild frá árinu 1944. Sakborningur hafði 227 sinnum sætt sektum fyrir ölvun á almannafæri á árabilinu 1920—1943. 1 tilefni af enn einu slíku broti og fyrir aðstoð við fanga til stroks var síðan ákveðið í dómi, að sakborningur skyldi að hinni ídæmdu refsingu afstaðinni (3 mán. fangelsi), lagður á drykkjumannahæli til lækningar í allt að 18 mánuði. Hliðstætt ákvæði hefur vei'ið afnumið í Danmörku, enda er mun heppilegi’a að koma slíkri hælisvistun við sem skilyrði í tengsjum við skilorðsbundinn dóm, reynslulausn eða náðun eða á grundvelli eig- in samþykkis. V. Hefur eitthvað áunnizt? Af því sem á undan er sagt, er ljóst, að algjör straumhvörf hafa orðið í nágrannalöndunum varðandi hinar svokölluðu sérráðstafanir. Voru flest slík úrræði úr lögum numin í Danmörku 1973 og í Noregi 1965 og 1974. Sum þessara úrræða voru aldrei tekin í íslenzk lög í sömu mynd og í þessum löndum. Einnig hafa sömu réttarfarsreglur gilt um mál ungmenna sem annarra, og þau hafa hlotið tímabundna refsivist, ef á annað borð hefur þótt nauðsynlegt að ákvarða þeim 70

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.