Tímarit lögfræðinga - 01.11.1980, Blaðsíða 17
5.4 Niðurlag.
Góðir áheyrendur. I grein sem ég ritaði í Tímarit lögfræðinga,
meðan ég dvaldist við framhaldsnám í Svíþjóð, komst ég svo að orði,
að stjórnsýslulög skorti tilfinnanlega í íslenska löggjöf. Eftir að hafa
kynnst íslenskri stjórnsýslu náið í þrjú og hálft ár, er ég ekki aðeins
sannfærður um, að stjórnsýslulög skorti tilfinnanlega hér á landi,
heldur geng ég svo langt að fullyrða að brýna nauðsyn beri til að setja
slíka löggjöf. Að minni hyggju stendur það engum nær en okkur,
íslenskum lögfræðingum, að sjá til þess að svo verði gert. Því ber
sérstaklega að fagna því framtaki Lögfræðingafélags Islands að efna
til umræðu um jafn mikilsvert mál.
HELSTU HEIMILDIR:
Stjórnarfarsréttur, 1955, eftir Ólaf Jóhannesson.
Forvaltningsloven, 1967, eftir Arvid Frihagen.
Förvaltningslagen, 1975, eftir Tryggve Hellners.
Udkast til forvaltningslov, útg. danska dómsmálaráðuneytið.
Forvaltningsprocesreform, eftir Níels Eilschou Holm, birtist í Juristen & 0konomen
1978.
Sænsku stjórnsýslulögin frá 1971, eftir höf., birtist í Tímariti lögfræðinga, 4. hefti 1975.
Málþing LögfræSingafélags íslands um stjórnarfarsrétt var haldið að Minni-
borg í Grímsnesi 13. október 1979. í þessu hefti eru birt 4 erindi, sem þar voru
flutt. Að auki hélt Gunnar J. Möller hæstaréttarlögmaður erindi, sem hann
nefndi: Rökstuðningur fyrir stjórnvaldsákvörðunum. Þess er vænst, að þessi
fyrirlestur fáist til birtingar, og verður hann þá prentaður í tímaritinu.
139