Tímarit lögfræðinga - 01.11.1980, Blaðsíða 18
Hjalti Zóphóníasson deildarstjóri:
AÐGANGUR MÁLSAÐILA AÐ GÖGNUM MÁLSINS
EFNISYFIRLIT:
I. Inngangur. ..............................................140
II. Rök fyrir almennum aðgangi að upplýsingum ...............141
III. Aðgangur málsaðila að gögnum málsins.....................142
A. Núverandi ástand......................................142
B. Aðgangur aðila máls að gögnum í réttarfarinu........143
C. Ýmis lög, sem fjalla að einhverju leyti um að-
gang málsaðila að gögnum málsins..................... 144
D. Frumvarp um aðgang að upplýsingum
hjá almannastofnunum ..................................146
I. INNGANGUR.
Ef menn hugleiða og bera saman þær ákvarðanir, sem stjórnvöld
taka annars vegar og dómstólar hins vegar, leikur enginn vafi á því,
að ákvarðanir stjórnvalda eru iðuléga afdrifaríkari og varða almenn-
ing yfirleitt mun meira en ákvarðanir, sem dómstólar taka í dómum
sínum. Það má því teljast harla undarlegt, að enn skuli ekki vera
til almennar reglur um málsmeðferð hjá stjórnvöldum á sama hátt
og hjá dómstólum.
Á síðustu áratugum hafa verið settar reglur á Norðurlöndunum um
málsmeðferð hjá stjórnvöldum. Þessar reglur eru nokkuð mismun-
andi eftir löndum, og mislangt er gengið í þeim.
Annar frummælandi í dag reifar sjónarmið með og á móti lögfest-
ingu reglna um almenna málsmeðferð hjá stjórnvöldum. Tel ég því
óþarft að fjalla nánar um þær. Sjálfur tel ég að setja þurfi sérstök
stjórnsýslulög um málsmeðferð í stjórnsýslunni, þar sem kveðið verði
á um vanhæfi stjórnvalda, málskot, o. fl.
Eitt þeirra atriða, sem fjalla þarf um, er reglur um aðgang aðila
máls að gögnum málsins. Tvívegis hafa verið lögð fram á Alþingi á
síðustu árum lagafrumvörp um aðgang að upplýsingum hjá almanna-
140