Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1980, Blaðsíða 29

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1980, Blaðsíða 29
ræmi hefur verið með reglum um meðferð mála, sem dómstólar skera úr um, og mála, sem stjórnvöld ráða fram úr. I þeim umræðum, sem fram hafa farið á síðari árum á Norðurlönd- um um vandaðri málsmeðferð í stjórnsýslunni, hefur m. a. verið bent á, að til mikilla bóta væri, ef þeir, sem stjórnvaldsákvarðanir varða eða beinast gegn, ættu þess jafnan kost að tala máli sínu, áður en ákvarðanir eru teknar. M. a. bendir Bent Christensen á það í doktors- riti sínu „Nævn og rád“ (Kaupmannahöfn 1958 bls. 394), að í öllum umræðum um réttarbót á þessu sviði, hafi sérstök áhersla verið lögð á, að hin svokallaða andmælaregla gildi í málsmeðferð fyrir stjórn- völdum, þar sem hún byggi á grundvallarhugmyndum um réttláta málsmeðferð. II. ALMENNT UM ANDMÆLAREGLUNA, EFNI HENNAR OG HLUTVERK. Andmælaregla er þýðing á hugtakinu „det kontradiktoriske princip“, eða kommunikationsprincipen eins og það er á sænsku. Theodór B. Líndal á líklega heiðurinn af þessari þýðingu, en hann segir í riti sínu Réttarfari II (1968-—69 bls. 192), að ein af meginreglum íslensks réttarfars sé andmælareglan. Aðilum er þannig í málum, er dómstól- ar hafa til meðferðar, tryggður jafn réttur til að koma fram kröfum sínum, andmælum og gögnum. Á sviði stjórnarfarsréttar gilda ýmsar reglur varðandi undirbún- ing að ákvörðunum, þó að stjórnvöldum sé oftast í sjálfsvald sett, hvernig þau haga þeim undirbúningi. (Ó. Jóh. bls. 204). Ein af megin- reglum stjórnarfarsréttarins er talin reglan um rannsóknarskyldu stjórnvalda, officialprincippet — eins og það er nefnt á norðurlanda- málunum. Regla þessi er að vísu ekki lögfest sem almenn regla í ís- lenskum rétti, aðeins í nokkrum tilteknum tilvikum (t. d. 16. gr. barnaverndarl. 53/1966), en telja má réttarvenju fyrir hendi (sbr. t. d. hrd. IV — 476 og XLIII — 945), enda má telja hana leiða af eðli máls í hverju réttarríki. Samkvæmt reglu þessari bera stjórnvöld ábyrgð á því, að allra nauðsynlegra upplýsinga varðandi mál, sem til úrlausnar er, verði aflað og þær rannsóknir og kannanir, sem nauð- synlegar þykja, verði framkvæmdar. Stjórnvöld verða þannig að sjá til þess, að mál hljóti þá meðferð og þann undirbúning, sem nauðsyn- legur kann að vera til að rétt og sanngjörn niðurstaða fáist í máli, er þau hafa til meðferðar. Ber þeim þá ekki einungis að hafa hags- muni hins opinbera í huga heldur og þeirra aðila, sem málið varðar. 151
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.