Tímarit lögfræðinga - 01.11.1980, Blaðsíða 68
Samþykktir fyrir Stéttarfélag lögfræðinga í ríkisþjónustu.
I. KAFLI. Heiti félagsins.
1. gr. Félagið heitir Stéttarfélag lögfræðinga í ríkisþjónustu.
II. KAFLI. Hlutverk. Félagsmenn.
2. gr. Félagið starfar á grundvelli laga nr. 46/1973 svo sem þeim hefir
verið breytt með lögum 23/1977, 58/1977 og 61/1977. Samkvæmt því annast
félagið kjaramál þeirra lögfræðinga sem starfa hjá ríkinu eða stofnunum
þess, sbr. 1. gr. I. nr. 61/1977 og kýs í því skyni fulltrúa í launamálaráð BHM
og aðrar stofnanir heildarsamtaka háskólamanna er fara með kjaramál, sbr.
1. mgr. 3. gr. I. nr. 46/1973.
Félagið annast gerð sérkjarasamnings lögfræðinga sbr. 2. mgr. 3. gr. I.
nr. 46/1973. Það skal gæta kjaralegra hagsmuna félagsmanna að öðru leyti
eftir því sem tilefni kann að verða til.
3. gr. Félagsmenn verða sjálfkrafa þeir sem skipaðir eru, settir eða ráðnir
í þjónustu ríkisins, ríkisstofnana eða atvinnufyrirtækja þess, með föstum
tíma-, viku- eða mánaðarlaunum enda verði starf þeirra talið aðalstarf sbr.
1. mgr. 1. gr. I. nr. 61/1977. Óski lögfræðingur ekki eftir félagsaðild skal
hann segja sig skriflega úr félaginu og hefur hann þá ekki lengur réttindi
og skyldur sem félagsmaður sbr. þó 5. mgr. 2. gr. I. nr. 46/1973. Þó skulu
þeir er taldir eru í 2. mgr. 1. gr. I. nr. 61/1977 aldrei teljast félagsmenn.
III. KAFLI. Aðalfundur.
4. gr. Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins.
Aðalfund skal að jafnaði halda í janúarmánuði ár hvert. Til hans skal boðað
með auglýsingu í Lögbirtingablaði er birtist með viku fyrirvara hið skemmsta,
og er hann þá lögmætur. Verði því við komið ber einnig að jafnaði að senda
félagsmönnum skriflegt fundarboð. Afl atkvæða ræður úrslitum mála, nema
annars sé getið í samþykktum þessum, sbr. 6. gr.
5. gr Þessi mál skulu tekin til meðferðar á aðalfundi:
I. 1. Stjórn félagsins gerir grein fyrir störfum félagsins.
2. Félagsstjórn leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins.
II. 1. Kosning stjórnar, varastjórnar og trúnaðarráðs.
2. Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara.
3. Kosning eins fulltrúa í húsnefnd félaga lögfræðinga.
III. Ákvörðun félagsgjalda.
IV. Önnur mál.
6. gr. Samþykktum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi félagsins.
í fundarboði skal þess getið sérstaklega að tillaga til breytinga á samþykktum
verði tekin til meðferðar á fundinum. Telst hún samþykkt ef 3/4 hlutar
fundarmanna á löglegum aðalfundi greiða henni atkvæði.
190