Tímarit lögfræðinga - 01.11.1980, Page 39
Leó E. Löve aðalfulltrúi:
?
)
UMBOÐSMAÐUR —
STARFSSVIÐ OG STARFSHÆTTIR
Erindi það sem nú verður flutt, hef ég kallað „Umboðsmaður —
starfssvið og starfshættir".
Vissulega er starfssvið umboðsmanna örlítið breytilegt eftir lönd-
um, en þar sem ég hef fengið að fyigjast með störfum umboðsmanns
danska þjóðþingsins, mun ég hér á eftir gera grein fyrir starfssviði
hans og starfsháttum, enda ekki ólíklegt, að danskir hættir verði ís-
lendingum fyrirmynd í þessu lögfræðilega efni, eins og svo mörg-
um öðrum — ef og þegar þar að kemur.
I upphafi mun ég þó gera grein fyrir starfssviði umboðsmanns eins
og það er víðast hvar, en víkja síðan að starfsháttum danska umboðs-
mannsins, þar sem einnig verður komið inn á reglur um starfssvið hans.
Að lokum bendi ég á nokkur þeirra atriða, sem hafa má í huga, þegar
metið er, að hvaða gagni Umboðsmaður Alþingis yrði fyrir íslenskt
þjóðfélag.
Þjóðþing velja sér umboðsmenn til þess að hafa óháð eftirlit með
stjórnkerfi landsins — þ.m.t. ráðherrum.
Tilgangurinn er sá að veita borgurunum vernd gegn ofríki eða
j mistökum embættismanna, en einnig veita stjórnsýslunni almennt að-
hald, og um leið er tryggt að óhlutdrægt álit fæst um mál, sem eru
viðkvæm af einhverjum ástæðum — t.d. pólitísk.
Mál eru kærð til umboðsmanns. Hann getur einnig tekið mál til
meðferðar að eigin frumkvæði. Allir geta kært, og skiptir aðild að
kæruefninu engu máli. Umboðsmaður veitir kærendum margvíslegar
leiðbeiningar, m. a. um það hvort málefnið sé þess eðlis, að undir
starfssvið hans falli.
Undir starfssvið umboðsmanns fellur öll stjórnsýsla ríkisins, en
oft einnig ýmis stjórnsýsla sveitarfélaga. Þar sem stjórnsýsla sveitar-
161