Tímarit lögfræðinga - 01.11.1981, Page 45
Stjórn Lögmannafélags íslands 1980-1981. Frá vinstri: Helgi V. Jónsson hrl., varaformaður,
Jónas A. Aðalsteinsson hrl., meðstjórnandi, Þorsteinn Júlíusson hrl., formaður, Svala Thorlacius
hdl., ritari og Ólafur Axelsson hdl., gjaldkeri. (Ljósm.stofa Vigfúsar Sigurgeirssonar sf.)
hefði afgreitt þau öll. Af störfum laganefndar má nefna umfjöllun um útgáfu
lagasafns, en nefndinni var falið af stjórninni að reyna að reka á eftir þeirri
útgáfu. Kjaranefnd var m.a. falið að koma á svokölluðu bakvaktakerfi lög-
manna vegna breytingar á lögum nr. 74/1974 um rétt handtekinna manna til
að fá skipaðan réttargæslumann þegar eftir handtöku. Bakvaktakerfið á að
tryggja, að jafnan sé tiltækur lögmaður, hvenær sólarhringsins sem er.
f skýrslu formanns kom fram, að stjórnin hefði um nokkurt skeið fjallað
um félagaskrána, þ.e.a.s. að þegar væri hafin endurskoðun á félagatali, en
því miður væri talsvert um það, að menn vildu halda lögmannsréttindum án
þess að hlíta skyldum félaga í Lögmannafélaginu. Er þá sérstaklega átt við
þá sjálfsögðu skyldu að greiða félagsgjöldin. Formaður taldi, að félagaskrána
þyrfti að taka til gagngerðrar endurskoðunar og raunar félagsaðildina. Kvað
hann það verkefni næstu stjórnar að halda áfram því verki, sem þegar hefði
verið hafið í þessu efni. Formaður gat um það, að m.a. hefði verið látið
reyna á það í dómsmáli, hvort lögmaður, sem neitaði aðild sinni að Lög-
mannafélaginu, gæti komist hjá því að greiða félagsgjöld. Héraðsdómur
komst að þeirri niðurstöðu, að viðkomandi væri skyldugur til þess að greiða
félagsgjöld, þar sem hann væri ,,eo ipso“ félagi í Lögmannafélaginu, þegar
hann hefði leyst til sín málflutningsleyfi. Þessum dómi áfrýjaði lögmaðurinn
til Hæstaréttar, en málið féll síðan niður vegna útivistar hans.
Þá kom fram, að komið hefði verið á laggirnar samstarfsnefnd Lögmanna-
félags íslands og Dómarafélags íslands, sem myndi skipuleggja námsstefnu
á Þingvöllum, þá um vorið.1)
1) SjáTL 1981 2. hefti bls. 110.
159