Tímarit lögfræðinga - 01.05.1984, Blaðsíða 47
Frá
Lögfræðíngafélagi
Islands
SKÝRSLA STJÓRNAR LÖGFRÆÐINGAFÉLAGS
ÍSLANDS 1982-1983
Flutt á aðalfundi 16. desember 1983
Stjórn félagsins á því starfsári, sem nú lýkur, var þannig skipuð: Arnljótur
Björnsson, formaður, Guðrún Erlendsdóttir, varaformaður, Baldur Guðlaugs-
son, Logi Guðbrandsson, Ólöf Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Tímarits lög-
fræðinga, Valgeir Pálsson, gjaldkeri og Þorgeir Örlygsson, ritari. Stjórnin var
kosin á aðalfundi hinn 16. desember 1982.
Á árinu 1983 voru haldnir eftirtaldir fræðafundir:
1. 14. janúar. ,,The Supreme Court and Human Rights in the United States.“
Framsögumaður var Charles L. Black, Jr., prófessor við lagadeild Yale
háskólans I Connecticut. Fundinn sátu 26 menn.
2. 31. janúar. „Endurskoðun samninga um nýtingu náttúruauðlinda.“ Fram-
sögumaður var Ragnar Aðalsteinsson, hrl. Fundarmenn voru 41.
3. 23. febrúar. „Hugmyndir um lög og lagasetningu í Grágás." Framsögu-
maður var Sigurður Líndal, prófessor. Fundarmenn voru 36.
4. 24. mars. „Takmarkanir á úrskurðarvaldi dómenda samkvæmt 60. gr.
stjórnarskrárinnar." Framsögumaður var Eiríkur Tómasson, hdl. Á fund-
inum voru 98.
5. 14. apríl. „Tfmabærar breytingar á norrænum vátryggingarsamningalög-
um.“ Framsögumaður var Knut S. Selmer, prófessor við lagadeild Osló-
arháskóla. Fundinn sóttu 51 maður. Hann var haldinn í samvinnu við
Dómarafélag Islands og Lögmannafélag íslands.
6. 6. maf. „Miskabætur fyrir líkamstjón." Framsögumaður var Guðný
Björnsdóttir, lögfræðingur Tryggingaeftirlitsins. Gerði hún grein fyrir
helstu sjónarmiðum og niðurstöðum ritgerðar, sem birtist eftir hana í
Tímariti lögfræðinga, 3. hefti 1982. Fundarmenn voru 47.
7. 15. nóvember. „Kreppa í réttarfari." Framsögumaður var Jón Steinar
Gunnlaugsson, hrl. Á eftir framsöguræðu voru pallborðsumræður undir
stjórn Þórs Vilhjálmssonar, hæstaréttardómara. Auk hans og framsögu-
manns tóku þátt í pallborðsumræðunum þeir Gestur Jónsson, hrl., Hrafn
Bragason, borgardómari og Magnús Thoroddsen, hæstaréttardómari.
Fundinn sóttu 106 manns.
41