Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1985, Síða 14

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1985, Síða 14
árunum 1960-1961, en einnig var höfð hliðsjón af frönsku höfunda- lögunum frá 1957 og þýsku höfundalögunum frá 1965. Sérstök áhersla var lögð á, að höfundalögin fullnægðu kröfum alþjóðasáttmála á vett- vangi höfundaréttar, Bernarsáttmálans, Genfarsáttmálans og Rómar- sáttmálans um vernd listflytjenda. Ekki orkar neins tvímælis, að mjög var vandað til samningar höf- undalaganna. Sérstök ástæða er til þess að vekja athygli á því, að með þeim var höfundum að meginstefnu til tryggður réttur til hvers konar nota og ráðstöfunar verka sinna. Með því móti var tryggt, að höfundur hefði rétt til hvers konar nýrra nýtingarmöguleika, sem síðar kæmu til sögunnar. Þessi löggjafarhættir hafa haft mikla þýðingu, þótt hins vegar verði því ekki neitað, að stórstígar tækniframfarir síðustu ára hafi skapað ný viðhorf og kallað á ýmsar lagabreytingar. Engu að síð- ur er fullvíst, að ekki er nauðsyn neinna grundvallarbreytinga á höf- undalögum og rétti höfunda til verka sinna. Ekki hafa verið gerðar neinar breytingar á höfundalögum nr. 73/ 1972 (hér á eftir skammst. höfl.), fyrr en með lögum nr. 78 30. maí 1984 um breyting á höfundalögum, nr. 73 29. maí 1972. Með lögum nr. 78/1984 var lögfest sérstakt gjald til höfunda og annarra rétthafa vegna upptöku verka á hljóð- eða myndbönd í þágu einkanota með heimild í 1. mgr. 11. gr. höfl. Gjaldið skal heimt af upptökutækjum og auðum böndum, sbr. nánar 1.-4. gr., 6. gr. og 9.-10. laga nr. 78/1984. Einnig var réttarfarsákvæðum höfl. breytt með lögum nr. 78/1984. Eftirleiðis sæta brot á höfl. opinberri ákæru að kröfu þess, sem mis- gert er við, auk þess sem rétthafi getur rekið mál sitt sjálfur, en síð- argreind leið var ein fær samkv. höfl. fyrir breytinguna, sbr. nánar 8. gr. laga nr. 78/1984. Jafnframt voru viðurlög við brotum á höfundar- rétti hert, sbr. 5. gr. laganna. Þá var tekið af skarið um það í lögum nr. 78/1984, að höfundur ætti skýlausan rétt til miskabóta í tilefni af brotum á höfundarrétti og skilyrði miskabóta rýmkuð. Loks var vernd 46. gr. rýmkuð og látin ná til myndrita, sbr. 3. gr. laga nr. 78/1984. 3.0. ALÞJÖÐASAMNINGAR. Sjá nánar: Bernitz o.fl.: Immaterialratt, l)ls. 13-15, Olsson: Copyright, bls. 115-123, Weincke: Ophavsret, bls. 140-147, Copinger & Skone James: Copyright, bls. 563 o.áfr., Guide to the Berne Convention, útg. af WIPO 1978, og Ulmer: Urheber- und Verlagsrecht, bls. 80-105. Sagt hefur verið, að bókmenntir og listir þekki ekki nein landamæri. Víst er um það, að langt er síðan mönnum varð ljóst, að höfundar gætu átt hagsmuna að gæta utan landamæra heimalands síns. Hafa ríki því bundist samtökum til verndar réttindum höfunda og hefur þörf á slíkri 84

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.