Tímarit lögfræðinga - 01.10.1985, Qupperneq 18
vallaratriðum verndar sem bókmenntaverk samkvæmt höfl., en að
sjálfsögðu með því skilorði að um verk sé að ræða í skilningi höfl.
(Sjá hér t.d. Jon Bing: Ophavsrett og edb.).
b) Listaverk.
I 1. máls'gr. 1. gr. höfl. er talað um listaverk. Listaverk samkvæmt
höfl. er stundum skilgreint eitthvað á þá leið, að það sé verk, sem sé
ætlað að ná fram listræpum áhrifum, eða verk, sem ekki teljist til
bókmennta í skilningi höfl.
Ekki er þó ástæða til að leggja mikla áherslu á skilgreiningu þessa
hugtaks, enda þótt höfl. greini milli tveggja aðalflokka verka, þ.e.
bókmennta annars vegar og listaverka hins vegar. Stafar það af því, að
ekkert ákvæði höfl. fjallar um listaverk eingöngu, sbr. þó 16. gr., en
hugtakið listaverk í síðastgreindu ákvæði ber væntanlega að skýra
þrengjandi skýringu. öðru máli gegnir um einstakar listgreinar, svo
sem leiksviðsverk, tónverk, myndlistarverk, byggingarlist, kvikmynda-
verk, Ijósmyndir, nytjalist o.fl. Þar er skilgreiningar þörf.
c) Leiksviðsverk.
Samkvæmt greinargerð með frumv. til höfl. teljast til leiksviðs-
verka þau verk, sem ætluð eru til listflutnings á leiksviði. Sem dæmi
eru tekin venjulegir sjónleikir, listræn tónverk og söngleikir svo og
verk, sem heyri til danslist eða látbragðslist, sbr. Alþt. 1971, A-deild,
bls. 1277. Er hér um að ræða verk, sem flutt eru af listflytjendum
ýmiss konar. Þegar þessi verk eru í bókarformi, hlíta þau reglum um
bókmenntir.
í þessu sambandi má geta þess, að sviðsetning og leikstjórn geta
notið verndar sem sjálfstæð verk. Sjá hér hrd. 54.1974.
d) Tónverk.
1 greinargerð með frumv. til höfl. segir, að hugtakið tónsmíðar taki
til hvers konar hljómlistarverka, með eða án orða, og án tillits til þess,
hvort verkið hafi verið samið áður eða um leið og það sé flutt, sbr.
Alþt. 1971, A-deild, bls. 1277. Tónsmíð á nótum telst til tónverka í
skilningi höfl.
e) Myndlist.
1 greinargerð með frumv. til höfl. segir, að til myndlistar í höfunda-
rétti teljist „m.a. málverk, listrænar teikningar og önnur dráttlistar-
verk, málmristur, steinprent, tréskurðarverk, höggmyndalist og önn-
ur samsvarandi verk í litum og formum (grafísk og plastisk),“ sbr.
88