Tímarit lögfræðinga - 01.10.1985, Side 34
staka þætti úr verkinu fylgja með í sýningu viðburðarins eða í frá-
sögn af honum, sbr. 3. málsgr. 15. gr. höfl. Tekið er fram í greinar-
gerð með frv. til höfl., að í frásögn um dægurviðburðinn eða sýningu
hans verði hlutur verksins að vera aukaatriði. Ella þurfi að leita sam-
þykkis höfundar og greiða honum þóknun eftir venjulegum reglum.
(Sjá Alþt. 1971, A-deild, bls. 1289).
7.6. Myndun bygginga og listaverka, sem eru á almannafæri utanhúss.
Samkv. 16. gr. höfl. er heimilt að taka og birta myndir af bygging-
um svo og listaverkum, sem komið hefur verið fyrir varanlega á al-
mannafæri utanhúss. Þessi not eru heimil endurgjaldslaust, nema slíkt
listaverk, þar með eru talin byggingarlistaverk, sé aðalatriði myndar,
sem hagnýtt er til markaðssölu. 1 því tilviki á höfundur rétt til þókn-
unar, nema um blaðamyndir eða sjónvarpsmyndir sé að ræða.
Eðli máls samkvæmt tekur 16. gr. til myndlistar og byggingarlist-
ar. Er það til dæmis tekið berum orðum fram í samsvarandi ákvæði
dönsku höfl., er nota orðið „kunstværker“ í þeirri merkingu, en ekki
hugtakið „kunstnerisk værk“, sem er sömu merkingar og listaverk
í íslensku.
7.7. Afnotakvöð í þágu safnverka, sem ætluð eru til notkunar
við guðsþjónustu eða kennslu.
17. gr. höfl. heimilar með vissum skilyrðum og takmörkunum að
taka verk í safnrit, sem ætluð eru til notkunar við guðsþjónustu, skóla-
kennslu eða útvarpskennslu. Er þarna um svonefnda afnotakvöð að
ræða, þar sem höfundur á jafnan rétt á endurgjaldi fyrir þessa notk-
un. Það skilyrði er sett, að í safnritið sé tekið úr verkum margra höf-
unda, og ekki nær heimildin til verka, sem samin hafa verið til notk-
unar við skólakennslu, ef safnverkið er gefið út í sama skyni.
Afnotakvöð samkvæmt 17. gr. nær, með ofangreindum takmörkun-
um, í fyrsta lagi til einstakra bókmenntaverka og tónverka, ef smá eru
að vöxtum, svo og kafla úr stærri verkum, enda séu liðin 5 ár frá
næstu áramótum eftir útgáfu þeirra, sbr. 1. tölul. 17. gr. 1 öðru lagi
nær þessi kvöð til mynda, teikninga af listaverkum og gagna, sem
getið er um í 3. málsgr. 1. gr. höfl., í tengslum við méginmál sam-
kvæmt 1. tölul. 17. gr., enda séu 5 ár liðin frá næstu áramótum eftir
að verkið var birt, sbr. 2. tölul. 17. gr.
104