Tímarit lögfræðinga - 01.10.1985, Síða 35
7.8. Heimild til hljóðritunar birtra verka til bráðabirgðanota
við kennslu.
18. gr. höfl. heimilar fræðslumálastjóminni að láta fara fram innan
opinberra skóla upptöku birtra verka á hljóðrit til bráðbirgðanotkunar
við kennslu. Jafnframt er tekið fram, að ekki mégi nota hljóðritin í
öðru skyni og að ekki sé heimild til beinnar upptöku eftir hljómplöt-
um eða öðrum hljóðritum, sem framleidd eru til markaðssölu. Heimild
samkv. 18. gr. nær því fyrst og fremst til hljóðritunar eftir útvarpi.
Heimild 18. gr. nær ekki til upptöku á myndrit.
7.9. Útgáfa bókmenntaverka og tónverka með blindraletri og ljós-
myndun slíkra verka í þarfir heyrnar- og málleysingjaskóla,
Samkv. 19. gr. höfl. er heimilt án endurgjalds til höfundar að prenta
og gefa út með blindraletri bókmenntaverk og tónverk, sem út hafa
verið gefin. Einnig má ljósmynda þau til notkunar í heyrnar- og mál-
leysingjaskólum.
7.10. Afnotakvöð í þágu tónlistar.
20. gr. höfl. mælir svo fyrir, að heimilt sé að nota sem texta einstök
kvæði eða kafla úr stærri verkum, sem út hafa verið gefin, þegar lög
eru sungin opinberlega á hljómleikum. Má þá einnig prenta textann í
sögnskrá án nótna til afnota fyrir áheyrendur. Höfundur á rétt til
þóknunar fyrir þessi afnot.
7.11. Afnotakvöð í þarfir fræðslu.
Samkvæmt 21. gr. höfl., sbr. 1. töluh, er opinber flutningur bók-
menntaverks eða tónvei’ks, sem út hefur verið gefið og ekki er leik-
sviðsverk, heimill við fræðslustarfsemi. Höfundi ber þóknun, ef greitt
er sérstaklega fyrir flutninginn.
Afnotakvöð þessi er í þágu hvers konar flutnings verka, þar á með-
al flutnings í útvarpi. Hins vegar nær kvöðin aðeins til verka, sem
hafa verið gefin út. Er samkvæmt því miðað við útgáfu í skilningi
höfl. en ekki birtingu, sbr. skilgreiningar í 2. og 3. málsgr. 2. gr.
7.12. Heimild til opinbers flutnings bókmenntaverks og tónverks
á samkomum og mannfundum.
Samkvæmt 2. og 3. tölul. 21. gr. höfl. er með vissum skilyrðum frjálst
að flytja bókmenntaverk og tónverk, sem út hafa verið gefin og ekki
eru leiksviðsverk, á samkomum og mannfundum, sem ekki er stofnað
til í atvinnuskyni eða ávinnings, sbr. nánar nefnd lagaákvæði.
105