Tímarit lögfræðinga - 01.10.1985, Blaðsíða 42
én serstakar reglur giida um fyrirsvar sæmdarréttar eftir lát höfund-
ar, sbr. 59. gr. höfl., sbr. 8. gr. laga nr. 78/1984.
8.3. Hjúskapur.
Höfundarréttur er séreign höfundar, á meðan hann lifir. Verður sú
séreign eigi skert með kaupmála eða öðrum hætti, þar á meðal hvorki
við slit á fjárfélagi né búskipti. Tekjur af höfundarrétti og endur-
gjald fyrir framsal hans eru hins vegar hjúskapareign. Að höfundi
látnum telst höfundarréttur hjúskapareign hans, nema kaupmáli standi
til annars, sbr. 1. málsgr. 30. gr. höfl. Um eintök listaverka fer með
vissum skilyrðum eftir sömu reglum svo og um handrit, sbr. 3. máls-
gr. 30. gr. höfl.
8.4. Lögsókn skuldheimtumanna.
Skuldheimtumenn geta ekki leitað fullnustu í höfundarrétti, hvorki
hjá höfundi sjálfum né þeim, sem hlotið hafa þann rétt að arfi eða
fyrir hjúskap. Hjá framsalshafa má aðeins leita fullnustu í þeim rétti,
sem honum er heimilt að framselja, en slíkan rétt á framsalshafi al-
mennt ekki, nema svo hafi verið sérstaklega samið, sbr. 2. máisgr. 30.
gr. höfl. Þessar reglur gilda einnig um eintök listaverka, sem höf-
undur hefur ekki haft til sýnis almenningi, boðið opinberlega til sölu
eða viðurkennt með öðrum hætti, að birta megi opinberlega, svo og
um handrit, sbr. 3. málsgr. 30. gr. höfl.
9.0. RÉTTARVARSLA.
9.1. Refsingar.
Meginreglan er sú, að brot á höfundarrétti varði refsingu og eru
brot, sem refsingu varða, talin upp í 54. gr. höfl., sbr. 6. gr. laga nr.
78/1984. Mestu máli skiptir, að refsiverðar eru aðgerðir, sem brjóta
í bága við einkarétt höfundar samkvæmt 3. gr. og sæmdarrétt hans,
sbr. 4. gr. Brot varða sektum, varðhaldi eða fangelsi, allt að tveimur
árum. Voru viðurlög þyngd með lögum nr. 78/1984, sbr. 5. gr. þeirra
laga. Það er skilyrði refsingar, að brot hafi verið framið af ásetningi
eða stórfelldu gáleysi, sbr. 1. málsgr. 54. gr. Dæma má fésekt á hend-
ur félagi eða fyrirtæki, ef brot hefur verið framið á vegum þess, sbr. 3.
málsgr. 54. gr.
9.2. Upptaka og ónýting muna.
1 55. gr. höfl. er lagt á vald dómstóla að ákveða upptöku á ólöglegum
eintökum og munum, sem varða undirbúning að gerð slíkra eintaka,
112