Tímarit lögfræðinga - 01.06.1992, Qupperneq 18
„Nú þykir hæstarétti að vísu vera gallar á verki héraðsdómara, sækjanda, verjanda og
annarra, en ekki slíkir sem sektum eigi að varða, og getur dómurinn þá talið gallana og
vítt viðkomendur fyrir þá, eftir því sem honum þykir ástæða til.“
Samsvarandi ákvæði er nú í 188. gr. laga nr. 74, 1974 og 162. gr. laga nr. 19,
1991.
Orðið „annarra“ í lagagreininni getur tæpast átt við aðra en þá sem eru þjónar
réttarins, þ.e. starfsmenn réttarins eða aðstoðarmenn málflytjenda í réttinum.
Kemur ákvæðið því varla til álita sem heimild fyrir aðfinnslum og ávítum
réttarins á hendur starfsmönnum framkvæmdavaldsins frekar en önnur ákvæði
refsiréttarfarslaganna.
Sé dóminum rétt, þrátt fyrir það sem hér var sagt, að víta aðila, einstakling
eða stofnun, eða finna beinlínis að verkum hans án þess að það tengist
úrlausnum sem grundvalla niðurstöðu í máli, vaknar spurning um hvernig staðið
skuli að vítum eða aðfinnslum. Gefst aðilanum sem verður fyrir vítum eða
aðfinnslum tækifæri til andsvara? Mér er ekki kunnugt um að svo sé.
Eftir 1. júlí 1977, er frumrannsókn mála færðist nánast að fullu og öllu úr
höndum dómara til lögreglu, fóru sumir héraðsdómarar (sakadómarar) að
skrifa í dóma sína aðfinnslur og ávítur sem þeir beindu að lögreglunni vegna
málsrannsókna. Á sínum tíma voru dómararnir húsbændur lögreglumanna eða
rannsóknarlögreglumanna og stýrðu rannsóknum þeirra, en því hlutverki þeirra
er nú lokið og víst er að refsiréttarfarslögin fela héraðsdómurum hvergi agavald
yfir lögreglunni.
Yfirstandandi dómaskipunar- og réttarfarsbreytingar eiga að staðfesta þrí-
greiningu ríkisvaldsins í raun og í umræðu um breytingarnar hefur verið lögð
áhersla á að einangra beri hlutverk dómstóla við meðferð dómsvalds, hlutverk
löggjafans við löggjafarstarf, um leið og hvers konar opinber sýsla, sem ekki
fellur undir dómgæslu eða lagasetningu, þ.m.t. vald til að halda uppi lögum og
allsherjarreglu, verði í verkahring framkvæmdavaldsins.
Lögregluliðum er stýrt af lögreglustjórum og lögreglustjórar þ.m.t. rannsókn-
arlögreglustjóri ríkisins lúta yfirstjórn dómsmálaráðherra. Yfirstjórn rannsókna
opinberra mála og eftirlit með rannsóknum er hins vegar í höndum ríkissaksókn-
ara samkvæmt 21. gr. laga nr. 74, 1974 um meðferð opinberra mála. Lögreglu-
stjórar mega því búast við faglegum áminningum eða aðfinnslum frá ríkissak-
sóknara en agavaldið er hjá dómsmálaráðherra. í þessu sambandi má ekki
gleymast að Umboðsmaður Alþingis hefur eftirlit með stjórnsýslunni í landinu í
umboði Alþingis, þ.m. lögreglu og ákæruvaldi, og gætir þess að stjórnsýslustörf
fari fram í samræmi við lög og góða stjórnsýsluhætti. Dómarar sem aðrir ættu að
geta vakið athygli umboðsmanns Alþingis á sérhverju sem þeir telja aflaga fara í
stjórnsýslustörfum.
Ég lýk þessum skrifum um aðfinnslur dómenda sent beinast að störfum
12