Tímarit lögfræðinga - 01.06.1992, Síða 46
c) Lög nr. 68/1967, um Iðnlánasjóð, sbr. nú lög nr. 76/1987
í 18. gr. þeirra laga segir, að verði eigendaskipti að eign, sem veðsett sé
Iðnlánasjóði, sé stjórn sjóðsins heimilt að heimta lánið endurgreitt að fullu eða
nokkru leyti, ef henni þykir ástæða til, enda skuli bæði seljanda og kaupanda
skylt að tilkynna sjóðstjórninni eigendaskipti þegar í stað.
d) Lög nr. 45/1972, um Stofnlánadeild samvinnufélaga
Samkvæmt 10. gr. þeirra laga er heimilt að heimta lán endurgreitt að nokkru
eða fullu, ef eigendaskipti verða að eign, sem veðsett er stofnlánadeildinni.
e) Lög nr. 44/1976, um Fiskveiðasjóð íslands
Samkvæmt 21. gr. laganna er heimilt að telja lán eða eftirstöðvar fallnar í
gjalddaga án uppsagnar, „... við eigendaskipti að veði fyrir láni ...“
f) Lög nr. 34/1979, um veðdeild Búnaðarbanka íslands
í 9. gr. laganna segir: „Nú verða eigendaskipti á fasteign, sem er veðsett
veðdeildinni, og getur bankastjórn þá heimtað lánið endurgreitt að öllu eða
nokkru leyti, ef henni þykir ástæða til. Vilji nýr eigandi taka að sér lánið, má það
verða, ef eignarheimild hanser sönnuð og bankastjórnin samþykkir ..." í 10. gr.
laga nr. 45/1971 um Stofnlánadeild landbúnaðarins segir, að verði eigendaskipti
að eign, sem veðsett sé stofnlánadeildinni, sé stjórn hennar heimilt að heimta
Iánið endurgreitt að nokkru eða öllu. Skylt sé kaupanda og seljanda að tilkynna
stjórn Stofnlánadeildarinnar eigendaskiptin.
g) Lög nr. 62/1979, um Landflutningasjóð
Þar segir í 6. gr., að verði eigendaskipti að eign, sem veðsett sé landflutninga-
sjóði, hvort heldur bifreið eða fasteign, sé stjórn sjóðsins heimilt að heimta lánið
endurgreitt að fullu, enda skuli bæði seljanda og kaupanda skylt að tilkynna
sjóðnum eigendaskipti þegar í stað.
h) Reglugerð nr. 217/1990, um húsbréfadeild og húsbréfaviðskipti vegna kaupa
eða sölu á notuðum íbúðum og kaupa, sölu eða byggingar á nýjum íbúðum
í 15. gr. reglugerðarinnar segir, að verði húsbréfadeild eigandi fasteignaveð-
bréfs, þá verði nýr eigandi við eigendaskipti hinnar veðsettu eignar að fá
samþykki deildarinnar til þess að yfirtaka skuld. Hafi slíks samþykkis húsbréfa-
deildar ekki verið leitað, eða samþykki ekki fengist, þá sé húsbréfadeild heimilt
að gjaldfella alla skuldina.
Auk framangreindra laga- og reglugerðarákvæða skal þess getið, að ýmsar
lánastofnanir hafa í stöðluðum lánssamningsformum sínum ákvæði þess efnis,
að heimilt sé að fella skuld í gjalddaga fyrirvaralaust og án uppsagnar, m.a. ef
40