Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Side 15
framsalshafa, því næst í samskiptum framsalshafa og þriðja manns, og loks
verður sérstaklega hugað að réttarstöðu skuldara.
2.2 Lögskipti framseljanda og framsalshafa
2.2.1 Meginreglur
Framsal kröfu er afsalsgemingur, sem byggir á samningi eða loforði frá
framseljanda til framsalshafa. Um skuldbindingargildi slíks samnings eða lof-
orðs í millum aðila, þ.e. milli framseljanda og framsalshafa, gilda almennar
reglur um skuldbindingargildi loforða.18
Framsal leiðir því aðeins til aðilaskipta að kröfuréttindum, að framseljandi
hafi heimild til þess að ráðstafa réttindunum með þeim hætti, sem framsals-
samningurinn gerir ráð fyrir. Framsalshafi þarf m.ö.o. að eiga þann rétt til
kröfunnar, að hann geti framselt hana.19 Sjá nánar kafla 2.3.1.
Sú meginregla gildir um framsal almennra krafna, að framsalshafi öðlast
einungis þann rétt, sem framseljandi átti, og að jafnaði ekki meiri rétt.20 Sjá
t.d. Hrd. 1987 348 (Oy Credit), þar sem m.a. segir: „hafði framsalið því
einungis áhrif sem framsal almennrar kröfu, þ.e. framsalshafi öðlaðist ein-
ungis þann rétt sem framseljandi hafði“.
Þegar leysa þarf úr því, hvem rétt framsalshafi öðlast við framsalið, verður að
sjálfsögðu fyrst og fremst að líta til þess, hvað ráðið verður af þeim samningi,
sem liggur til grundvallar framsalinu. Réttarsamband framseljanda og
framsalshafa lýtur að meginstefnu til þeim réttarreglum. sem almennt gilda um
efndir og vanefndir samninga.21 Akvæði laga nr. 39/1922, um lausafjárkaup, eiga
við, þegar seldar eru kröfur og önnur réttindi, eftir því sem við getur átt. Er þá
að jafnaði lagt til grundvallar, að um kaup sé að ræða, þegar tiltekinn aðili, sem
er handhafi kröfuréttinda, framselur réttindin í heild til annars aðila og fær í
staðinn endurgjald í peningum.22 Ef um vanefndir er að ræða á skyldum
framseljanda gagnvart framsalshafa, getur framsalshafi neytt heimilda af því
tilefhi samkvæmt almennum reglum, t.d. rift samningi eða krafist skaðabóta.23
18 Henry Ussing, Obligationsretten, bls. 214; Bernhard Gomard, Obligationsret, bls. 77.
19 Henry Ussing, Obiigationsretten, bls. 220; Ólafur Lárusson, Kaflar úr kröfurétti, bls. 44.
20 Ólafur Lárusson, Kaflar úr kröfurétti, bls. 44; Bernhard Gomard, Obligationsret, bls. 79.
21 Sjá t.d. Bernhard Gomard. Obligationsret, bls. 68, 77 og 78.
22 Henry Ussing, K0b, Kaupmannahöfn 1967, bls. 2 og bls. 26-27. Anders Vinding Kruse,
Kpbsretten, Kaupmannahöfn 1987, bls. 40; Bernhard Gomard, Obligationsret, bls. 68.
23 Ólafur Lárusson, Kaflar úr kröfurétti, bls. 44-45; Bernhard Gomard, Obiigationsret,
bls. 77-78.
81