Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Blaðsíða 44
sem geri lánssamning með viðskiptabréfi við neytanda, skuli eiga tryggingu
að upphæð kr. 50.000 vegna hugsanlegra vanefndakrafna neytenda vegna
þeirra viðskipta, sem að baki viðskiptabréfinu búa. Sjá einnig 2. mgr. 6. gr.
laga nr. 80/1994 um alferðir.
Eins og áður er fram komið, þá eru kröfuhafaskipti að almennum (ein-
földum) kröfum heimil að svo miklu leyti sem framsalið skerðir á engan hátt
rétt skuldarans. Framsalsreglurnar miðast við það að tryggja rétt hans, þ.e.
skuldarans, sem best. Þegar um viðskiptabréfakröfur er að ræða, gilda ólíkar
reglur, sem hafa það ekki að markmiði að tryggja rétt skuldarans, heldur
tryggja rétt framsalshafans, þ.e. að hann fái þann rétt, sem bréfið bendir til.
Farmskírteini eru viðskiptabréf. Til skýringar má nefna það dæmi, að A, sem
er framleiðandi vöru, selur B vörur, sem A hefur framleitt. A gerir farmsamn-
ing við skipafélag um flutning vörunnar til B, og er B þar með orðinn farm-
samningshafi. B framselur síðan farmskírteinið til C.
Samkvæmt 116. gr. laga nr. 34/1985 verður heimild þeirri, sem seljandi
kann að hafa til að stöðva afhendingu á vöru til kaupanda eða bús hans eða
til að fá vöru skilað aftur, ekki beitt gangvart þriðja manni, sem grandlaus
hefur eignast farmskírteinið við framsal eftir þeirri heimild, sem 106. gr. sigl-
ingalaga segir. C hefur hér fengið farmskírteini framselt frá B. í framangreindu
felst, að verði B gjaldþrota, þá getur A ekki beitt stöðvunarrétti þeim, sem
hann ella hefði samkv. 39.- 41. gr. kpl. Hann yrði að afhenda C vörumar þrátt
fyrir gjaldþrot B. C hefur í skjóli farmskírteinisins öðlast þann rétt, sem
skírteinið hljóðar um. Hinn svokallaði gagnkvæmnisréttur er ekki fyrir hendi
í þessu tilviki. Skuldara stoðar hér ekki að bera fyrir sig vanefnd framseljanda
gagnvart framsalshafa í góðri trú.
Skrá yfir tilvitnaða dóma:
Hrd. 1936 133
Hrd. 1940 291
Hrd. 1940 496
Hrd. 1948 251
Hrd. 1958 381
Hrd. 1961 432
Hrd. 1964 900
Hrd. 1965 314
Hrd. 1967 78
Hrd. 1968 52
Hrd. 1968 422
Hrd. 1969 663
Hrd. 1969 921
110