Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Síða 48

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Síða 48
Hver, sem þröngvar kvenmanni, er ekki hefir neitt óorð á sér, til samræðis við sig með ofbeldi eða hótunum um ofbeldi þegar í stað, sem henni mundi búinn lífsháski af, skal sæta hegningarvinnu ekki skemur en 4 ár eða lífláti ef mjög miklar sakir eru. Sé slík meðferð höfð á kvenmanni, sem óorð er á, þá skal beita vægari hegningu að tiltölu, ekki samt vægari en 2 ára betrunarhúsvinnu. Með lagabreytingu árið 1928 var líflátshegningarákvæðinu breytt í ævilanga hegningarvinnu. Nauðgunarákvæðið í hegningarlögunum frá 1940, sem gilti óbreytt til ársins 1992 var svohljóðandi: Ef kvenmanni er þröngvað til holdlegs samræðis með ofbeldi eða frelsissviptingu, eða með því að vekja henni ótta um líf, heilbrigði eða velferð hennar sjálfrar eða náinna vandamanna hennar, þá varðar það fangelsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum eða ævilangt. Ljóst er af framansögðu að litið er á nauðgun sem mjög alvarlegt afbrot og samkvæmt lögum geta viðurlög verið mjög þung. Hins vegar er athyglisvert að refsimörk hafa verið milduð frá því sem áður var og með lagabreytingunni 1992 var refsihámarkið ævilangt fangelsi fellt niður. í greinargerð með frum- varpinu er ekki að finna rökstuðning fyrir því, en vísað til danskra, norskra og sænskra refsilaga. Nefnd sú sem samdi frumvarp til laga um breytingar á XXII. kafla hegningarlaganna og lagt var fyrir Alþingi árið 1991 lagði til að 194. gr. yrði tvískipt, þ.e.a.s. almennt ákvæði með 10 ára fangelsi sem hámark og refsihækkunarákvæði, sem beita átti væri hættuleg aðferð notuð við verkn- aðinn eða sakir miklar að öðru leyti, og skyldi refsing þá vera ekki skemmri en 1 árs fangelsi og allt að 16 árum. Allsherjamefnd Alþingis leitaði umsagnar ýmissa sem um mál þessi fjalla og að fengnum þessum umsögnum lagði nefndin til að lagagreinin yrði á þann veg sem síðar var samþykkt á Alþingi. Segir í nefndarálitinu að þetta væri gert þar sem ástæða þótti til að óttast, m.a. með hliðsjón af þeim umsögnum sem borist hefðu, að sú breyting sem lögð væri til í frumvarpinu leiddi til refsilækkunar almennt fyrir nauðgunarbrot. I þessu samhengi þykir rétt að gera grein fyrir því, að nefndinni barst meðal annars umsögn frá nokkrum dómurum við sakadóm Reykjavíkur um frum- varpið. Umsögn dómaranna um 2. gr. frumvarpsins, sent breyta átti 194. gr. laganna, var svohljóðandi: Að okkar áliti eru ekki efni til að hagga við refsimörkuin 194. gr. almennra hegningarlaga á þann hátt sem gert er í frumvarpinu, sérstaklega að þrengja lágmarksrefsiákvæði greinarinnar svo að það eigi aðeins við þegar miklar sakir eru. Mundi það leiða til lægri refsingar fyrir nauðgun, en athugun okkar leiðir í ljós, að skírlífisbrotum hefur farið fjölgandi hin síðari ár. Teljum við ekki rétt að bregðast við því með því að lækka viðurlög fyrir þau. Leggjum við til að hámarksrefsing fyrir nauðgun verði 16 ára fangelsi og almennt refsilágmark verði 1 ár, en lágmarksrefsing 114
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.